Sérveitin kölluð út að vopnaðri líkamsárás á Selfossi Agnar Már Másson skrifar 3. febrúar 2026 15:25 Lögreglan tekur mann höndum við fjölbýlishús á Selfossi. Aðsend Hið minnsta einn var handtekinn í aðgerðum lögreglu og sérsveitar í fjölbýlishúsi á Selfossi um klukkan 15 í dag. Tilkynnt var um slagsmál þar sem vopni var mögulega beitt og er málið rannsakað með líkamsárás.
Þorsteinn M. Kristinsson, aðalvarðstjóri lögreglunnar á Suðurlandi, segir í samtali við Vísi að lögreglunni hafi fyrst borist tilkynning um slagsmál á Selfossi rétt fyrir klukkan 15 þar sem grunur var uppi að vopn hafi verið notuð. Lögregla hafi óskað eftir aðstoð sérsveitar Ríkislögreglustjóra og var einn maður handtekinn í aðgerðinni. Hann segir að vopn hafi verið notað, þó ekki skotvopn, og að einhverjir áverkar séu á fólki. Varðstjórinn svarar játandi spurður hvort málið sé rannsakað sem líkamsárás. Upp úr klukkan 15 sást til lögreglubíla og bíls sérsveitar aka niður Kamba í austurátt og beygja svo í átt að Selfossi. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að sjúkraflutningamenn Heilbrigðisstofnunar Suðurlands hafi verið í viðbragðsstöðu. Sjónarvottur, sem vill ekki láta nafn síns getur, segir við Vísi að hann hafi séð lögreglumenn ganga inn í fjölbýlishús að Álftarima 9 með múrbrjót meðferðis til þess að brjóta niður hurð. Á myndskeiðum frá vettvangi má sjá mann klæddan í röndótta yfirhöfn tekinn höndum af lögregluþjónum. Veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot hérna. Frétt hefur verið uppfærð.
Árborg Lögreglumál Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira