Sláandi niðurstöður um afstöðu Dana til sambandsins við Bandaríkin Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 3. febrúar 2026 08:57 Fjöldi danskra uppgjafarhermanna auk annarra mótmælenda tóku þátt í þögulli mótmælagöngu í Kaupmannahöfn á dögunum þar sem ummælum Donalds Trump Bandaríkjaforseta um framlag NATO-hermanna í Afganistan var mótmælt. Gengið var frá borgarvirkinu Kastellet og að bandaríska sendiráðinu í Kaupmannahöfn. EPA/Emil Nicolai Aðeins sautján prósent dönsku þjóðarinnar segjast líta á Bandaríkin sem bandalagsríki á meðan um sextíu prósent álíta Bandaríkin vera andstæðing samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Rétt rúm tuttugu prósent voru óviss eða kusu að svara ekki. Niðurstöðurnar þykja verulega sláandi.
Það er óhætt að segja að nokkuð hafi slest upp á vinskapinn milli Bandaríkjanna og Danmerkur undanfarið vegna síendurtekinna ummæla Donalds Trumps Bandaríkjaforseta og hans fólks um að Bandaríkin „verði“ að eignast Grænland. Danmörk og Bandaríkin hafa annars verið náin bandalagsríki svo lengi sem elstu menn muna og hafa dönsk stjórnvöld löngum talað um Bandaríkin sem „nánasta bandalagsríki“ danska konungsríkisins. En ef marka má niðurstöður skoðanakönnunar sem Epinion gerði fyrir DR er ljóst að danskur almenningur hefur efasemdir um hversu góður bandamaður Bandaríkin eru Danmörku. Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar lítur yfirgnæfandi meirihluti svarenda á Bandaríkin sem andstæðing frekar en bandamann. Könnunin fór fram dagana 21. til 28. janúar og svöruðu 1.053 könnuninni þar sem spurt var „miðað við aðstæður í dag, myndir þú lýsa Bandaríkjunum sem bandamanni eða andstæðingi?“ Svörin voru á þá leið að 17% sögðust líta á Bandaríkin sem bandamann, 60% álíta þau andstæðing og 20% sögðust ekki vita það. Þá kusu 3% að svara ekki. Athygli vekur einnig að lítill munur er á svörum eftir aldri, kyni, búsetu, stjórnmálaskoðunum eða öðrum breytum. Meirihluti svarenda í öllum þjóðfélagshópum telur Bandaríkin frekar vera andstæðing en bandamann. Sláandi niðurstaða í sögulegu samhengi DR bar niðurstöður könnunarinnar undir fulltrúa tveggja stjórnmálaflokka í stjórnarandstöðu, sem bæði segja vera nokkuð sláandi. „Þetta er sannarlega dálítið ógnvekjandi. Þetta er einn af okkar elstu bandamönnum. Við höfum átt diplómatísk samskipti við Bandaríkin í yfir 225 ár, við eigum þétt, náið vinasamband og bandalag. Allt í einu segjast sextíu prósent þjóðarinnar að við eigum ekki að líta lengur þannig á það. Þetta er sláandi,“ hefur DR eftir Lars-Christian Brask, þingmanni Liberal Allience og talsmanni flokksins í utanríkismálum. Hann kveðst þó skilja vel hvers vegna í ljósi þeirra ummæla sem Bandaríkjaforseti hefur látið falla. Martin Lindegaard, þingmaður Radikale Venstre, tekur í sama streng. „Þetta er til marks um að samband okkar við Bandaríkin hefur tekið stakkaskiptum, og það er í sannleika sagt ekkert skrítið miðað við þær hótanir sem hafa beinst gegn Grænlandi og efnahagi okkar,“ segir Lindegaard. Þúsundir tóku þátt í No Words mótmælagöngunni í Kaupmannahöfn á dögunum. EPA/Emil Nicolai Helms Greinandi danska ríkisútvarpsins segir niðurstöðurnar nokkuð sláandi, einkum í sögulegu samhengi. Bandaríkin hafi gegnt lykilhlutverki við frelsun Danmerkur og Evrópu undan hæl nasista í seinni heimsstyrjöldinni og hafi verið allra mikilvægasta bandalagsríki Danmerkur. Danir hafi notið góðs af efnahagslegu samstarfi við Bandaríkin á eftirstríðsárunum auk þess sem Danmörk hafi verið undir verndarvæng Bandaríkjanna í kalda stríðinu. Bandaríkin hafi reynst Dönum það mikilvægur bandamaður að Danir hafi verið reiðubúnir að leggja sitt af mörkum til að styðja Bandaríkin, til að mynda í Afganistan. Meðal þess sem einmitt hefur reitt Dani til reiði upp á síðkastið, til viðbótar við ásælni Bandaríkjaforseta gagnvart Grænlandi, eru ummæli Trumps á þá leið að Danir hafi lítið sem ekkert gert fyrir Bandaríkin, sem mörgum þótti gera lítið úr framlagi danskra hermanna sem lögðu Bandaríkjunum lið í Afganistan, en mannfall danskra hermanna í Afganistan var eitt það mesta miðað við höfðatölu.
Danmörk Bandaríkin Donald Trump Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Mest lesið Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Innlent Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Innlent Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Sjá meira