Leystu upp alla stjórnmálaflokka landsins Kjartan Kjartansson skrifar 2. febrúar 2026 08:55 Ibrahim Traoré, forseti herforingjastjórnar Búrkína Fasó. Formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokks Íslands lýsti honum meðal annars sem góðum leiðtoga í nýlegu viðtali. AP/Angelos Tzortzinis Herforingjastjórn Búrkína Fasó leysti upp alla stjórnmálaflokka landsins og afnam lög um þá í síðustu viku. Fulltrúar stjórnarinnar segja að stjórnmálaflokkar hafi valdið sundrung og grafið undan„ samfélagskerfi“ landsins.
Starfsemi stjórnmálaflokka í vesturafríska ríkinu hefur verið bönnuð undanfarin ár eftir að herinn rændi völdum árið 2022. Aðgerðirnar sem herforingjastjórnin kynnti í síðustu viku hafa það í för með að eignir stjórnmálaflokkanna færast til ríkisins og þeir leystir upp, að sögn AP-fréttastofunnar. „Ríkisstjórnin trúir því að útbreiðsla stjórnmálaflokka hafi leitt til óhófs, alið á sundrung á meðal borgaranna og veikt samfélagskerfið,“ sagði Emile Zerbo, ráðherra í herforingjastjórninni á fimmtudag. Undir stjórn Ibrahim Traoré, forseta herforingjastjórnarinnar, hafa félagasamtök og stjórnarandstæðingar verið kúgaðir. Traoré hefur meðal annars verið sakaður um að kalla blaðamenn og andstæðinga sína ólöglega upp í herinn. Mannréttindasamtökin Mannréttindavaktin segir að herforingjastjórnin hafi þrengt verulega að réttindum hinsegin fólks. Hún samþykkti meðal annars lög um fjölskyldur sem gera samkynhneigð í reynd ólöglega í landinu. Til stóð að haldnar yrðu kosningar eftir valdaránið en þeim var frestað. Þá leysti herforingjastjórnin upp sjálfstæða yfirkjörstjórn landsins.
Búrkína Fasó Mannréttindi Hinsegin Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Buxnalaus Lalli olli glundroða Innlent Fleiri fréttir Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Sjá meira