„Tel nægja að menn séu að fremja ítrekuð afbrot“ Sunna Sæmundsdóttir skrifar 28. janúar 2026 12:45 Snorri Másson, varaformaður Miðflokksins. Vísir/Vilhelm Frumvarp um afturköllun verndar brotamanna er á dagskrá Alþingis í dag og líklegt má telja að frumvarpið fljúgi í gegnum þingið. Þingmaður Miðflokksins vill þó að gengið verði lengra þannig að hægt verði að svipta þá vernd sem framið hafa ítrekuð brot, þrátt fyrir að þau teljist ekki alvarleg.
Um er að ræða aðra umræðu frumvarpsins eftir meðferð þess í allsherjar- og menntamálanefnd. Í því er lagt til að heimilt sé að afturkalla alþjóðlega vernd flóttamanns ef gildar ástæður eru taldar til þess að álíta hann hættulegan öryggi ríkisins, að einstaklingur hafi hlotið dóm fyrir alvarlegt afbrot eða hafi verið dæmdur fyrir ítrekuð afbrot sem ógni almannaöryggi eða allsherjarreglu. Rofinn samfélagssáttmáli Snorri Másson, þingmaður og fulltrúi Miðflokksins í allsherjar- og menntamálanefnd, lagði til breytingar á frumvarpinu í minnihlutaáliti og vill að gengið verði lengra. „Það þarf ekkert að taka sérstaklega fram, eða réttlæta breytingarnar með því að þetta ógni allsherjarreglu eða almannaöryggi. Ég tel einfaldlega nægja að menn séu að fremja ítrekuð afbrot til þess að það sé tekið til skoðunar hvort þeir séu ekki búnir að brjóta þannig af sér að þeir missi verndina,“ segir Snorri. „Mín persónulega skoðun er einfaldlega sú að þá sértu búinn að rjúfa þann samfélagssáttmála sem við komum á með því að veita mönnum hérna alþjóðlega vernd.“ Vinna við frumvarpið var hafin á sínum tíma í miðri umræðu um mál Mohamad Kourani, sem hlotið hefur fjölda dóma og meðal annars fyrir alvarleg ofbeldisbrot. Snorri telur að ákvæðið muni í núverandi mynd aðeins eiga við um örfáa einstaklinga. Fleiri brot ættu að vera undir. „Til dæmis brot gegn friðhelgi einstaklinga, nálgunarbann, heimilisofbeldi, skjalafals, svik gagnvart stjórnvöldum. Þetta er eitthvað sem ég nefni í minni tillögu að er í raun og veru ekki að falla inn í brotaflokkana sem þau eru að taka þarna.“ Þrátt fyrir að leggja til breytingar mun Snorri sætta sig við frumvarpið í núverandi mynd og greiða atkvæði með því. Hann hefur þó áhyggjur af því að afturköllun verndar sé ekki endanleg lausn þar sem erfitt geti reynst að vísa fólki úr landi. Hann hvetur stjórnvöld til að beita sér fyrir endurskoðun alþjóðasamninga. „Í mjög mörgum tilvikum má enn ekki senda þau til baka, vegna þess að hvert ætlarðu að senda þau? Samkvæmt þessum alþjóðasáttmálum megum við ekki senda þau á óöruggan stað. Þannig að þetta er í raun og veru líklegt til þess að valda bara frekar flækjum í kerfinu, þótt það sé alveg eðlilegt að við höfum þessa heimild.“ Þverpólitísk sátt Telja má líklegt að frumvarpið fljúgi í gegnum þingið. Jens Gerðar Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurði á Alþingi í gær hvar frumvarpið væri eiginlega statt. Vísaði hann til þess að formaður Viðreisnar hafi rétt áður en þingfundum var frestað fyrir jól reynt að koma því á dagskrá, þrátt fyrir að búið væri að semja um afgreiðslu mála, líkt og Vísir greindi frá. Jens Garðar sagði í ræðu sinni í gær að þverpólitískur vilji væri til staðar. Undarlegt væri að frumvarpið hafi ekki ratað á dagskrá, á sama tíma og búið væri að bera fram tuttugu og tvö önnur mál eftir að þingfundir hófust á ný. „Hvar er útlendingafrumvarpið sem var svo lífsnauðsynlegt að klára fyrir jólin en sést ekki enn glitta í núna?“ sagði Jens Garðar. Líkt og áður segir er málið nú komið á dagskrá og verður rætt á Alþingi í dag.
Alþingi Miðflokkurinn Flóttafólk á Íslandi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira