Meistarinn í krampakasti á Opna ástralska Ágúst Orri Arnarson skrifar 24. janúar 2026 10:04 Jannik Sinner lenti í miklum vandræðum. Mark Avellino/Anadolu via Getty Images Hitinn á Opna ástralska meistaramótinu í tennis hefur verið hærri en vanalega þetta árið og ríkjandi meistarinn Jannik Sinner lenti í miklum vandræðum í þriðju umferðinni gegn Eliot Spizzirri.
Sinner tapaði fyrsta settinu en stanglaðist svo til 3-1 sigurs í 3 klukkustunda og 45 mínútna leik í 38 stiga hita. 4-6, 6-3, 6-4, 6-4. Hann kallaði til læknis í þriðja settinu en læknirinn gat lítið hjálpað og Sinner sást skjálfa vegna krampa þegar líða fór á leikinn. „Ég lenti í miklum líkamlegum vandræðum þannig að ég er glaður að hafa getað unnið þennan leik“ sagði ríkjandi meistarinn. „Þetta byrjaði í fótunum en færði sig svo upp í hendurnar. Ég var kominn með krampa alls staðar. Ég var mjög heppinn að hafa hitaregluna. Þetta batnaði með tímanum.“ 🧠 #coachespod #NEXO @NexoFinance pic.twitter.com/2gbB5E0m28— #AusOpen (@AustralianOpen) January 24, 2026 „Hitareglan“ virkjast þegar ákveðnum veðurskilyrðum er náð. Þá gerir dómari hlé á leiknum, í stað þess að leikmenn taki sér hléið sem þeir eiga báðir inni. Þegar dómari stöðvaði leikinn hjá Sinner þótti einhverjum það umdeilt, þar sem hann var í sjáanlega miklum vandræðum og væntanlega að fara að tapa settinu, en reglum mótsins var fylgt rétt eftir. Eftir pásuna ráðlagði þjálfari Sinner honum að tapa þriðja settinu, þar sem hann var lentur undir og átti mjög litla orku til að berjast til baka. Betra leikplan væri að vinna næstu tvö sett í röð, en Sinner lét ekki segjast og tókst að snúa settinu við. Hann komst síðan áfram í sextán liða úrslit og mætir þar Luciano Darderi. Hitinn hefur haft áhrif á fleiri keppendur á mótinu, flest alla eflaust. Tennis er sport sem eltir sumarið og spilar þess vegna í Ástralíu í janúar. Hitinn í ár hefur hins vegar verið í hærra lagi og mótastjórn hefur þurft að hliðra mörgum leikjum, þannig að þeir fari ekki fram yfir hádegið í mesta hitanum.
Tennis Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Fótbolti Fleiri fréttir Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Verða fleiri framúrakstrar í Mónakó? Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Lofar nýjum stjörnuleikmanni í Real Madrid á morgun Getur Wemby bjargað NBA? Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur Öskubuskuævintýri í gangi í París Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Fékk nýjan samning en Ferrari gefur ekki upp árafjöldann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Messi æfði einn viku fyrir Íslandsleikinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield „Allar spár kolrangar og vitlausar“ HM-minning: Þegar Norður-Kórea komst lengra en Brasilía á HM „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Listamaður lögsækir FIFA fyrir að mála yfir myndina sína Norðmenn mæta með nýja útgáfu af Víkingaklappinu á HM í sumar Manchester United kaupir Ederson Ný rangstöðutækni á HM Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Tileinkaði Úkraínu sigurinn Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum John Barnes greindist með krabbamein Wales jafnaði metin í lokin Besta gengi Ítala á risamóti Sjá meira