Ekki útilokað að Ísland sæti Grænlandstollum Agnar Már Másson skrifar 17. janúar 2026 18:38 Lars Lökke Rasmussen, utanríkisráðherra Dana, fór í ferð til Bandaríkjanna til að ræða við varaforseta og utanríkisráðherra Bandaríkjanna í vikunni. „Hún er algjörlega misheppnuð,“ segir stjórnmálafræðingur um fundinn. AP Ekki er útilokað að Donald Trump Bandaríkjaforseti leggi toll á Ísland, að mati stjórnmálafræðings, rétt eins og forsetinn hyggst gera við fjölda Evrópuríkja vegna stuðnings þeirra við Grænland. Stjórnmálafræðingurinn segir að aðferðir Trumps séu komnar á svo alvarlegt stig að Evrópulönd geti ekki lengur útilokað innrás Bandaríkjamanna í Grænland.
Baldur Þórhallsson stjórnmálafræðingur segir að ekki sé hægt að draga miklar ályktarnir af því að Trump minnist ekki á Ísland í færslu sinni þar sem hann tilkynnti um 10 prósenta Grænlandstoll á Norðurlönd, Breta, Frakka, Þjóðverja og fleiri. „Það veit enginn hvort það muni koma að því eða ekki. Sú hætta vofir yfir okkur þó að við séum ekki í þessum fyrstu aðgerðum hans,“ segir stjórnmálafræðingurinn í samtali við Vísi. Trump nefndi í færslu sinni að hann hygðist gefa enn frekar í þann 1. júní og hækka tollinn í 25 prósent ef Evrópulönd verða ekki búin að styðja við innlimun Grænlands í Bandaríkin. „Og þetta er orðið mjög erfitt og alvarleg staða milli þessara bandalagsríkja, Bandaríkjanna og Evrópuríkja,“ bætir Baldur við. Hinar diplómatísku leiðir hættar að virka með Trump Forsetinn virðist með þessu ætla sér að refsa þeim sérstaklega sem hafa staðið fyrir heræfingum danskra stjórnvalda á Grænlandi en tveir fulltrúar Landhelgisgæslunnar hafa verið sendir til Grænlands. Baldur Þórhallsson stjórnmálafræðingur.Vísir/Vilhelm „Hann kvikar ekki frá markmiðum sínum um að ná völdum á Grænlandi,“ segir hann. Stóra spurningin að mati Baldurs er hvort ríki Evrópu, sem hafa reynt að vinna á mjög jákvæðum diplómatískum nótum með Bandaríkjastjórn til að forðast átök, muni halda áfram að fara hinar hefðbundnu diplómatísku leiðir í samskiptum sínum við Trump. „Sum ríki hafa nú gengið mjög langt í að sleikja upp Bandaríkin, einna lengst Bretar, og þessi jákvæða diplómatíska nálgun gagnvart Trump og að gefa stöðugt eftir er ekki að skila neinum árangri.“ Hann spyr hvort tímabært sé að svara bandarískum stjórnvöldum af meiri hörku. „Það virðist vera að hann líti þannig á að annað hvort ertu með honum eða ert á móti, það er enginn millivegur. Ef menn hreyfa einhverjar mótbárur þá ertu ekki í vinaliðinu og átt hættu á refsiaðgerðum.“ Íslendingar í klípu Baldur segir því að íslensk stjórnvöld standi frammi fyrir miklum vanda varðandi það hvernig eigi að bregðast við; hvort þau ætli að standa með Grænlendingum og á sama tíma reyna að styggja ekki Bandaríkjastjórn. Íslensk stjórnvöld hafa væntanlega miklar áhyggjur af þessum málum? „Jú, ég geri ráð fyrir því að þau hafi miklar áhyggjur af því hvort við munum enda í þessum fyrstu refsiaðgerðum,“ svarar Baldur. Enn fremur hefur hann áhyggjur af því að Bandaríkin að Ísland lendi í næstu tollaaðgerðum sem eiga að taka gildi 1. júní að óbreyttu. „Ég held að það megi efast um að hann sé hættur þarna.“ Gæti beint spjótum sínum að einstaka fyrirtækjum Bandaríkjaforseti á ekki að geta lagt sérstaka tolla á Danmörku án þess að leggja tolla á öll Evrópusambandsríkin enda eru þau í tollabandalagi. Bandaríkin geta aftur á móti lagt toll á einstaka vörur sem eru mikilvægur útflutningur þessara landa, svo sem lyf frá Danmörku. „Hann gæti ráðist á einhver stórfyrirtæki hjá þeim,“ nefnir Baldur í samhengi Norðurlanda. „Hann hefur auðvitað mörg tromp á hendi til að klekkja á þessum ríkjum efnahagslega og líka varnarlega og öryggislega“ Baldur segir að ferð Lars Lökke Rasmussen, utanríkisráðherra Dana, hafi greinilega ekki gengið vel. „Hún er algjörlega misheppnuð. En það er vandmeðfarið.“ Evrópulönd geta ekki útilokað innrás Stjórnmálafræðingurinn bendir þó á að Trump hafi í auknum mæli talað um að kaupa Grænland, frekar en að taka það yfir með valdi „En út frá því hvernig hann hagar sér þá tel ég að hann muni ekki láta staðar numið,“ bætir Baldur við. Trump hefur enn ekki útilokað hernaðaríhlutun á Grænlandi. „Það er ekki hægt að útloka það að hann beiti valdi til þess að ná Grænlandi. En það er ekki komið að þeim tímapunkti enn, en Danir, Grænlendingar og Evrópulönd geta ekki útilokað þann möguleika, því að málið er komið á það alvarlegt stig.“
Grænland Donald Trump Skattar, tollar og gjöld Evrópusambandið NATO Danmörk Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Sjá meira