Yfir 350 milljónir í kostnað vegna starfslokasamninga hjá ríkisstofnunum Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 16. janúar 2026 07:01 Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur meðal annars gert starfslokasamninga á undanförnum árum og hefur kostnaður vegna þeirra numið tæpum tólf milljónum. Vísir/Vilhelm Á átta ára tímabili, frá 2018 til 2025, hafa fimm ráðuneyti og undirstofnanir þeirra samtals varið rúmum 350 milljónum í kostnað vegna starfslokasamninga.
Undirstofnanir menningar-, nýsköpunar-, og háskólaráðuneytisins hafa gert 22 starfslokasamninga sem kostað hafa samtals rúmar sextíu milljónir. Á sama tímabili hefur kostnaður vegna slíkra samninga hjá innviðaráðuneytinu og stofnunum þess numið tæpum 48,3 milljónum og munar þar langmestu um fimm starfslokasamninga hjá Vegagerðinni. Þá hafa stofnanir sem heyra undir fjármálaráðuneytið gert starfslokasamninga sem hljóða upp á tæpar 39 milljónir króna. Þetta má lesa úr svörum ráðherra við fyrirspurnum Karls Gauta Hjaltasonar, þingmanns Miðflokksins. Karl Gauti sendi sambærilega fyrirspurn um málið á öll ráðuneyti og hafa svör jafnt og þétt verið að berast, nú síðast frá þremur fyrrnefndum ráðuneytum. Áður hefur Vísir greint frá svörum utanríkisráðuneytisins og félags- og húsnæðismálaráðuneytisins um sama mál. Hundruð milljóna þegar og enn á helmingur eftir að svara Karl Gauti ræddi málið jafnframt í samtali við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í gær. „Ég er búinn að fá svar frá fimm ráðuneytum, tæplega helmingnum, og þetta er nokkuð svert víða. Heildarupphæðin er núna komin yfir 300 milljónir hjá þessum fimm ráðuneytum,“ sagði Karl Gauti meðal annars. Samkvæmt samantekt Vísis á þeim svörum sem þegar hafa borist frá ráðuneytunum fimm, nemur heildarkostnaður þeirra á tímabilinu samtals um 351,8 milljónum. Hann kveðst aðspurður ekki hafa falast eftir upplýsingum um hvers vegna ráðist hafi verið í alla þessa ráðningasamninga. „En það er sjálfsagt allur gangur á því þegar verið er að losa sig við fólk einhverra hluta vegna,“ sagði Karl Gauti, en hann spurði jafnframt um flutning starfsfólks á milli embætta. Íslenski dansflokkurinn efstur á blaði Í tilfelli menningar-, nýsköpunar-, og háskólaráðuneytisins hafa engir starfslokasamningar verið gerðir hjá ráðuneytinu sjálfu eða forverum þess á umræddu tímabili. Alls heyra 24 stofnanir undir ráðuneytið og hjá þeim voru samtals gerðir starfslokasamningar við 22 einstaklinga sem þar störfuðu. Mestur er kostnaðurinn hjá Íslenska dansflokknum vegna starfslokasamninga á árunum 2024 og 2025 en kostnaður vegna þeirra nam samtals 18.894.214. Ekki er þó hægt að lesa úr svarinu hversu margir starfslokasamningar liggja að baki hvort árið. Næstmestur hefur kostnaðurinn verið hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands árin 2021 og 2022 eða upp á samtals 11.659.752 krónur. Þá kemur Þjóðleikhúsið þar sem kostnaður vegna starfslokasamninga nam tæpum 10,3 milljónum á árunum 2019 og 2020. Á blað komast einnig Háskóli Íslands, Landbúnaðarháskóli Íslands, Þjóðskjalasafnið, og Listasafn Íslands þar sem kostnaður vegna starfslokasamninga í hverri stofnun nam innan við tíu milljónum á tímabilinu. Samtals gera þetta 60.325.727 krónur í kostnað vegna starfslokasamninga hjá undirstofnunum ráðuneytisins. Tæpar 40 milljónir vegna starfsloka hjá Vegagerðin Í tilfelli innviðaráðuneytisins voru gerðir 12 starfslokasamningar hjá ráðuneytinu og stofnunum þess og munar líkt og áður segir mestu um starfslokasamninga hjá Vegagerðinni sem voru fimm á tímabilinu. Alls hafa þeir kostað stofnunina rétt um 39,5 milljónir. Starfslokasamningar hjá Vegagerðinni hafa verið einna kostnaðarsamastir fyrir ríkið.Vísir/Hanna Þá gerði ráðuneytið sjálft starfslokasamning upp á rúmar sex milljónir og Byggðastofnun upp á 2,7 milljónir. Fjarskiptastofa, Rannsóknarnefnd samgönguslysa og Samgöngustofa komast einnig á blað en enginn kostnaður er tilgreindur í svarinu vegna þeirra starfslokasamninga sem þar hafa verið gerðir. Átján kúlur í kostnað hjá Framkvæmdasýslunni Hjá fjármálaráðuneytinu voru gerðir 13 starfslokasamningar á tímabilinu og nemur heildarkostnaður vegna þeirra 38,9 milljónum. Á árinu 2025 gerði Skatturinn tvo starfslokasamninga upp á 10,2 milljónir króna, og Framkvæmdasýsla ríkisins alls sjö samninga upp á 18,2 milljónir á tímabilinu frá 2023 til 2025. Umbra, þjónustumiðstöð stjórnarráðsins, gerði einn starfslokasamning árið 2020 og nam kostnaður vegna hans 4,3 milljónum og Fjársýslan hefur varið 3,7 milljónum í tvo slíka samninga frá árinu 2023. Loks var gerður einn starfslokasamningur árið 2024 hjá Ríkiskaupum sem kostaði ríkið 2,5 milljónir króna.
Rekstur hins opinbera Stjórnsýsla Alþingi Mest lesið Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Erlent Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Erlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Innlent Fleiri fréttir Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Sjá meira