Fundurinn í Washington gæti reynst örlagaríkur Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 13. janúar 2026 20:21 Jens-Frederik Nielsen og Mette Frederiksen mættu samstillt til blaðamannafundar í danska forsætisráðuneytinu í dag. EPA/LISELOTTE SABROE Afdráttarlaus ummæli sem forsætisráðherrar Grænlands og Danmerkur létu falla á sameiginlegum blaðamannafundi í Kaupmannahöfn í dag ættu að senda stjórnvöldum í Washington skýr skilaboð um að Grænland sé ekki til sölu, grænlenska þjóðin fáist ekki keypt, og að ríkin standi saman um að standa vörð um landamæri danska konungsríkisins. Á sama tíma þykir blaðamannafundurinn hafa verið til marks um mikilvægi þess að dönsk og grænlensk stjórnvöld komi samstillt til fundarins í Hvíta húsinu á morgun þar sem mikið er í húfi fyrir grænlensku þjóðina.
Þótt það hafi verið utanríkisráðherrar Grænlands og Danmerkur sem óskuðu eftir fundi með kollega sínum Marco Rubio í Bandaríkjunum þá eru ekki allir greinendur sem telja það góð tíðindi fyrir Grænland og Dani að varaforsetinn JD Vance hafi einnig boðað komu sína á fundinn. Þátttaka Vance á fundinum sé jafnvel til marks um stigmögnun í deilum ríkjanna. Sjá einnig: Vance ætlar að sitja fundinn með Løkke og Rubio Vance verður gestgjafi fundarins í Hvíta húsinu á morgun, en hann hefur til þessa verið mjög gagnrýninn á Danmörku sem hann segir alls ekki hafa staðið sig nægilega vel í að tryggja varnir Grænlands. Fjallað var nánar um málið í kvöldfréttum Sýnar í kvöld. Eftir að hávær umræða um að Bandaríkin „verði“ að eignast Grænland fór aftur á flug í síðustu viku, var það von danskra og grænlenskra stjórnvalda að geta átt beint og milliliðalaust samtal við stjórnvöld í Washington til að árétta að Grænland sé ekki til sölu og að Grænlendingar vilji ekki verða hluti af Bandaríkjunum, en um leið ræða hvaða leiðir sé hægt að fara til að tryggja varnir landsins og Norðurslóða enn betur, á grundvelli samvinnu við Bandaríkin. Undanfarna viku hefur umræðan að mestu farið fram í gegnum yfirlýsingar í fjölmiðlum eða á samfélagsmiðlum, og því óskuðu Lars Løkke Rasmussen og Vivian Motzfeldt eftir samtali við Rubio, í von um að draga umræðuna niður á jörðina og koma sjónarmiðum sínum beint á framfæri við bandarísk stjórnvöld. Eftir því sem umræðunni hefur undið fram, og ekki síst eftir að ljóst varð að Vance verði með á fundinum, þykir hins vegar ljóst að það gæti verið flókinn og erfiður fundur í vændum fyrir norrænu utanríkisráðherrana tvo. Trump og hans fólk hafa með engu móti dregið úr yfirlýstum vilja um að Bandaríkin eignist Grænland, en síðast í nótt deildi Hvíta húsið myndum á samfélagsmiðlum sem virðast sýna Trump Bandaríkjaforseta horfa út um glugga á skrifstofu sinni, þar sem fyrir utan er stórt kort af Grænlandi. Trump hefur ítrekað sagst þurfa Grænland til að tryggja þjóðaröryggi, Danir hafi staðið sig illa í að tryggja það, og honum nægi ekki víðtækar heimildir til frekari varnaruppbyggingar og aukinna hernaðarumsvifa á Grænlandi á grundvelli fyrirliggjandi varnarsamnings á milli ríkjanna. Ljóst er að allra augu verða á Washington á morgun en gert er ráð fyrir að fundurinn hefjist klukkan 15:30 að íslenskum tíma á morgun samkvæmt heimildum danskra fjölmiðla.
Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Grænland Danmörk Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Sjá meira