Suðurlandsvegi lokað vegna umferðarslyss Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 5. janúar 2026 09:33 Mynd frá vettvangi í morgun. aðsend Suðurlandsvegur var lokað í báðar áttir á milli Lækjarbotna að Gunnarshólma í morgun vegna umferðarslys. Þetta kemur fram í stuttri tilkynningu á vef Vegagerðarinnar. Samkvæmt fyrstu upplýsingum frá lögreglunni var veginum lokað til beggja átta sunnan Hólmsár en lögregla stýrir nú umferð á vettvangi um eina akrein.
Líkt og sjá má á meðfylgjandi mynd eru viðbragðsaðilar, þar á meðal sjúkrabílar, mættir á vettvang en ekki liggur fyrir að svo stöddu hvort um alvarlegt slys sé að ræða. „Suðurlandsvegur er lokaður í báðar áttir, sunnan Hólmsár, vegna umferðarslyss,“ segir í stutti færslu á Facebook-síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir einnig að ekki sé ljóst hversu lengi vegurinn verður lokaður og eru ökumenn beðnir um að sýna þolinmæði á meðan viðbragðsaðilar eru við störf á vettvangi. Uppfært klukkan 10:17 Í tilkynningu sem var að berast frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að nú sé búi að opna umferð um eina akrein á Suðurlandsvegi þar sem lögreglan stýrir umferð framhjá vettvangi slyssins á meðan hreinsun stendur yfir. „Vinna er í gangi að koma dráttarbifreiðum á vettvang til að fjarlægja ökutæki. Ekki er ljóst hver meiðsli/slys eru á fólki né fjölda einstaklinga. Ekki unnt að veita ferkari upplýsingar að svo stöddu þar sem þær liggja ekki fyrir,“ segir í tilkynningunni. Uppfært klukkan 11:25 Suðurlandsvegur hefur aftur verið onaður að fullu og störfum viðbragðsaðila er lokið á vettvangi. Þrjú ökutæki sem urðu fyrir miklu tjóni voru flutt af vettvangi samkvæmt tilkynningu sem barst frá lögreglu klukkan 10:45. Enn liggja þó ekki fyrir frekari upplýsingar um slys á fólki. Fréttin hefur verið uppfærð.
Umferðaröryggi Samgönguslys Reykjavík Kópavogur Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Lægðardrag á leiðinni Veður Fleiri fréttir Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Sjá meira