„Ísland þarf að vakna“ Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 27. nóvember 2025 23:32 Hjörleifur Björnsson og Bjartur Skjaldarson hafa unnið að útgáfu lagsins undanfarið. Hjörleifur segir það lýsa vel hvernig börnum sem glíma við fíknivanda líður en hann missti son sinn í september eftir langa baráttu við fíkn. Vísir/Anton Fíknivandi ungs fólks hefur áhrif á allt samfélagið sem þarf að fara að vakna og bregðast við. Þetta segir ungur maður sem glímt hefur við fíkn, það gangi ekki að úrræðum fari fækkandi á meðan vandinn vex. Árið 2021 dvöldu þeir Hávarður Máni Hjörleifsson og Bjartur Skjaldarson saman í sex mánuði á meðferðarheimilinu Lækjarbakka. Þar fóru þeir að skapa saman tónlist. Eitt af lögunum sem urðu til er Tíminn er að renna upp. Textinn er eftir Hávarð og lýsir erfiðleikunum fylgja því að vera í vímefnaneyslu. Hávarður tók sitt eigið líf í september á þessu ári aðeins tvítugur að aldri, fjórum árum eftir að lagið var samið en hann hafði glímt við fíknivanda frá tólf ára aldri. Lagið var aldrei gefið út á sínum tíma. Faðir Hávarðar fékk það sent eftir andlát hans og ákvað þá að tala við Bjart og gefa það út. Þeir fengu Bjarka Ómarsson til að hjálpa sér við það. „Við urðum bara svo ótrúlega hrifin af þessu lagi og okkur fannst við bara þurfa að gera eitthvað við þetta. Hann er svo ótrúlega fullkomlega einlægur í laginu og þetta sýnir manni svo ótrúlega vel hvernig þessum krökkum líður sem eru í þessum sporum,“ segir Hjörleifur Björnsson faðir Hávarðar. Bjartur og Hávarður voru sautján ára þegar þeir kynntust á meðferðarheimilinu og náðu strax vel saman. Báðir voru greindir með ADHD og áttu erfitt í skólakerfinu. Saga Bjarts úr skólakerfinu er eins og svo margra annarra sem finna sig ekki þar. Hann var orkumikill krakki sem átti erfitt með að vera kyrr og einbeita sér. Hann segist því fljótt hafa fengið á sig stimpil. „Stimpillinn að þú getir ekki lært. Þannig að maður byrjar einhvern veginn bara að trúa því einhvern veginn og án þess að fatta það. Þetta étur í sjálfstraustið hjá manni stanslaust,“ segir Bjartur. Hjörleifur segir skólagöngu Hávarðar líka hafa verið erfiða. „Skólakerfið eins og það er byggt upp í dag það er ekki í stakk búið að takast á við börn sem passa ekki inn í rammann. Það er það sem við horfðum upp á gerast með son okkar. Það er svona kannski númer eitt. Ef það hefði verið gert betur hvað hefði þá gerst. Maður veit það ekki.“ Bjartur segist alltaf hafa verið hvatvís og ákafur í flestu sem tekur sér fyrir hendur. Hann telur það hafa skipt sköpum þegar kemur að fíkninni. „Ég prófaði nikótín í fyrsta skipti þrettán ára og mér fannst það geggjað og þá byrjaði ég að hugsa, bara út frá nikótíni, hvernig líður mér þá af þessu hinu. “ Hann fór fljótlega eftir þetta að drekka áfengi og neyslan fór hratt úr böndunum. Fimmtán ára dvaldi hann í fyrsta sinn á meðferðarstofnun. „Það er eins og eitthvað taki yfir mann og maður missir stjórn og maður skilur ekkert í því. Síðan er þetta verst fyrir fólkið í kringum mann. Það er það versta.“ Bjartur hefur verið á beinu brautinni um nokkurt skeið og líður ágætlega. Hann segir sorglegt að fylgjast með umræðunni um úrræðaleysi fyrir ungt fólk í fíknivanda en það gangi ekki að úrræðum fækki á meðan vandinn vaxi. Hann sjálfur eigi góðar minningar frá því hann dvaldi á Lækjarbakka en því meðferðarheimili var lokað eftir að mygla fannst þar. „Þetta er bara ekki í lagi. Ég var að segja við móður mína um daginn vá hvað ég er þakklátur fyrir að hafa gengið í gengum þetta aðeins fyrr miðað við stöðuna núna.“ Hávarður Máni lést í september á þessu ári tvítugur að aldri. Ef einhver ágóði verður af laginu mun hann renna til Olnbogabarna sem eru samtök sem berjast fyrir betri úrræðum fyrir börn og ungmenni með áhættuhegðun. Hjörleifur segir mikilvægt að brugðist verði við þeirri erfiðu stöðu sem uppi í málaflokknum. „Við viljum sjá gerðar róttækar kerfisbreytingar sem gera það að verkum að krakkar sem finna sig í þessari stöðu og fjölskyldur þeirra fái viðeigandi aðstoð.“ Bjartur tekur í sama streng og segir almenning verða að átta sig á hversu slæm staðan sé orðin. „Fólk þarf að vakna. Bara Ísland þarf að vakna. Þetta eru ekki bara þessi börn og foreldrar þessa barna og fíklar sem eru að gjalda fyrir þetta. Þetta er bara allt samfélagið bókstaflega.“ Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi er bent á stuðning í Sorgarmiðstöð s. 551-4141, upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is og á Píeta símann s.552-2218. Fíkn Tengdar fréttir „Ég horfði á son minn brotna meira og meira, ár eftir ár“ Faðir manns sem glímdi við fíknivanda frá tólf ára aldri og svipti sig lífi tuttugu ára gamall segir kerfið hafa brugðist algjörlega. Neyðarvistun var eina úrræðið fyrir barn með fíknivanda og þar hafi strákurinn dvalið með langt gengnum eldri fíklum. Stofnanir sem eigi að grípa börn séu í raun völundarhús og drekkingarhylir. 22. september 2025 11:23 Mest lesið Dæmdur fyrir tvær nauðganir: Kom steinmunum fyrir í kynfærum konu Innlent Eitt er það sem Tómas vissi og gerði, annað hvað honum gekk til Innlent Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Erlent Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Erlent „Þetta er bara alveg svívirðilegt“ Innlent Braut kynferðislega á stúlku sem lá með skerta meðvitund á bráðamóttökunni Innlent Hætt við sýningarflug Airbus-þotu yfir Reykjavík Innlent Harður árekstur á Reykjanesbraut Innlent Leigubílstjóri jók hraðann á rauðu ljósi og ók á eldri konu Innlent Gæslan fylgist grannt með rússnesku skipi Innlent Fleiri fréttir Óttaslegnir íbúar binda vonir við nýjan meirihluta Hætt við sýningarflug Airbus-þotu yfir Reykjavík Braut kynferðislega á stúlku sem lá með skerta meðvitund á bráðamóttökunni Aðstoðuðu ferðamenn að Fjallabaki „Það er prjónabylting í gangi á Íslandi“ Frábær árangur Teits í alþjóðlegri keppni Eitt er það sem Tómas vissi og gerði, annað hvað honum gekk til Rýnt í stöðu Icelandair og prjónagarn selst upp Gæslan fylgist grannt með rússnesku skipi Dæmdur fyrir tvær nauðganir: Kom steinmunum fyrir í kynfærum konu „Þetta er bara alveg svívirðilegt“ Tilkynnt í annarlegu ástandi og reyndist vera á stolnum bíl Kærðir fyrir að aka á nagladekkjum Harður árekstur á Reykjanesbraut Fjármálastjórinn verður sveitarstjóri Bjóða bæjarbúum á bakgarðstónleika Segir hægrið sækja fram gegn náttúruvernd og mannréttindum Leigubílstjóri jók hraðann á rauðu ljósi og ók á eldri konu Ásta endurráðin í Bláskógabyggð Þyrlan kölluð út vegna bílveltu Sjálfstæðisflokkur tekur Framsókn með sér í meirihluta Sögðust ekki ætla að setja börn í lokað búsetuúrræði en nú er tónninn annar Áhyggjur Barnaheilla, veikindi prinsessu og sjómannadagur Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Grunaður um fíkniefnabrot á reynslulausn og neitaði að gefa upp nafn Önnur stúlka grunuð um að hafa sparkað ítrekað í hana Kveður eftir ævilangt starf Styrkja fjarskiptainnviði vegna almyrkvans en ítreka forgang 112 Nærbuxur í sundi landlægt vandamál Sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjá meira
Árið 2021 dvöldu þeir Hávarður Máni Hjörleifsson og Bjartur Skjaldarson saman í sex mánuði á meðferðarheimilinu Lækjarbakka. Þar fóru þeir að skapa saman tónlist. Eitt af lögunum sem urðu til er Tíminn er að renna upp. Textinn er eftir Hávarð og lýsir erfiðleikunum fylgja því að vera í vímefnaneyslu. Hávarður tók sitt eigið líf í september á þessu ári aðeins tvítugur að aldri, fjórum árum eftir að lagið var samið en hann hafði glímt við fíknivanda frá tólf ára aldri. Lagið var aldrei gefið út á sínum tíma. Faðir Hávarðar fékk það sent eftir andlát hans og ákvað þá að tala við Bjart og gefa það út. Þeir fengu Bjarka Ómarsson til að hjálpa sér við það. „Við urðum bara svo ótrúlega hrifin af þessu lagi og okkur fannst við bara þurfa að gera eitthvað við þetta. Hann er svo ótrúlega fullkomlega einlægur í laginu og þetta sýnir manni svo ótrúlega vel hvernig þessum krökkum líður sem eru í þessum sporum,“ segir Hjörleifur Björnsson faðir Hávarðar. Bjartur og Hávarður voru sautján ára þegar þeir kynntust á meðferðarheimilinu og náðu strax vel saman. Báðir voru greindir með ADHD og áttu erfitt í skólakerfinu. Saga Bjarts úr skólakerfinu er eins og svo margra annarra sem finna sig ekki þar. Hann var orkumikill krakki sem átti erfitt með að vera kyrr og einbeita sér. Hann segist því fljótt hafa fengið á sig stimpil. „Stimpillinn að þú getir ekki lært. Þannig að maður byrjar einhvern veginn bara að trúa því einhvern veginn og án þess að fatta það. Þetta étur í sjálfstraustið hjá manni stanslaust,“ segir Bjartur. Hjörleifur segir skólagöngu Hávarðar líka hafa verið erfiða. „Skólakerfið eins og það er byggt upp í dag það er ekki í stakk búið að takast á við börn sem passa ekki inn í rammann. Það er það sem við horfðum upp á gerast með son okkar. Það er svona kannski númer eitt. Ef það hefði verið gert betur hvað hefði þá gerst. Maður veit það ekki.“ Bjartur segist alltaf hafa verið hvatvís og ákafur í flestu sem tekur sér fyrir hendur. Hann telur það hafa skipt sköpum þegar kemur að fíkninni. „Ég prófaði nikótín í fyrsta skipti þrettán ára og mér fannst það geggjað og þá byrjaði ég að hugsa, bara út frá nikótíni, hvernig líður mér þá af þessu hinu. “ Hann fór fljótlega eftir þetta að drekka áfengi og neyslan fór hratt úr böndunum. Fimmtán ára dvaldi hann í fyrsta sinn á meðferðarstofnun. „Það er eins og eitthvað taki yfir mann og maður missir stjórn og maður skilur ekkert í því. Síðan er þetta verst fyrir fólkið í kringum mann. Það er það versta.“ Bjartur hefur verið á beinu brautinni um nokkurt skeið og líður ágætlega. Hann segir sorglegt að fylgjast með umræðunni um úrræðaleysi fyrir ungt fólk í fíknivanda en það gangi ekki að úrræðum fækki á meðan vandinn vaxi. Hann sjálfur eigi góðar minningar frá því hann dvaldi á Lækjarbakka en því meðferðarheimili var lokað eftir að mygla fannst þar. „Þetta er bara ekki í lagi. Ég var að segja við móður mína um daginn vá hvað ég er þakklátur fyrir að hafa gengið í gengum þetta aðeins fyrr miðað við stöðuna núna.“ Hávarður Máni lést í september á þessu ári tvítugur að aldri. Ef einhver ágóði verður af laginu mun hann renna til Olnbogabarna sem eru samtök sem berjast fyrir betri úrræðum fyrir börn og ungmenni með áhættuhegðun. Hjörleifur segir mikilvægt að brugðist verði við þeirri erfiðu stöðu sem uppi í málaflokknum. „Við viljum sjá gerðar róttækar kerfisbreytingar sem gera það að verkum að krakkar sem finna sig í þessari stöðu og fjölskyldur þeirra fái viðeigandi aðstoð.“ Bjartur tekur í sama streng og segir almenning verða að átta sig á hversu slæm staðan sé orðin. „Fólk þarf að vakna. Bara Ísland þarf að vakna. Þetta eru ekki bara þessi börn og foreldrar þessa barna og fíklar sem eru að gjalda fyrir þetta. Þetta er bara allt samfélagið bókstaflega.“ Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi er bent á stuðning í Sorgarmiðstöð s. 551-4141, upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is og á Píeta símann s.552-2218.
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi er bent á stuðning í Sorgarmiðstöð s. 551-4141, upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is og á Píeta símann s.552-2218.
Fíkn Tengdar fréttir „Ég horfði á son minn brotna meira og meira, ár eftir ár“ Faðir manns sem glímdi við fíknivanda frá tólf ára aldri og svipti sig lífi tuttugu ára gamall segir kerfið hafa brugðist algjörlega. Neyðarvistun var eina úrræðið fyrir barn með fíknivanda og þar hafi strákurinn dvalið með langt gengnum eldri fíklum. Stofnanir sem eigi að grípa börn séu í raun völundarhús og drekkingarhylir. 22. september 2025 11:23 Mest lesið Dæmdur fyrir tvær nauðganir: Kom steinmunum fyrir í kynfærum konu Innlent Eitt er það sem Tómas vissi og gerði, annað hvað honum gekk til Innlent Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Erlent Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Erlent „Þetta er bara alveg svívirðilegt“ Innlent Braut kynferðislega á stúlku sem lá með skerta meðvitund á bráðamóttökunni Innlent Hætt við sýningarflug Airbus-þotu yfir Reykjavík Innlent Harður árekstur á Reykjanesbraut Innlent Leigubílstjóri jók hraðann á rauðu ljósi og ók á eldri konu Innlent Gæslan fylgist grannt með rússnesku skipi Innlent Fleiri fréttir Óttaslegnir íbúar binda vonir við nýjan meirihluta Hætt við sýningarflug Airbus-þotu yfir Reykjavík Braut kynferðislega á stúlku sem lá með skerta meðvitund á bráðamóttökunni Aðstoðuðu ferðamenn að Fjallabaki „Það er prjónabylting í gangi á Íslandi“ Frábær árangur Teits í alþjóðlegri keppni Eitt er það sem Tómas vissi og gerði, annað hvað honum gekk til Rýnt í stöðu Icelandair og prjónagarn selst upp Gæslan fylgist grannt með rússnesku skipi Dæmdur fyrir tvær nauðganir: Kom steinmunum fyrir í kynfærum konu „Þetta er bara alveg svívirðilegt“ Tilkynnt í annarlegu ástandi og reyndist vera á stolnum bíl Kærðir fyrir að aka á nagladekkjum Harður árekstur á Reykjanesbraut Fjármálastjórinn verður sveitarstjóri Bjóða bæjarbúum á bakgarðstónleika Segir hægrið sækja fram gegn náttúruvernd og mannréttindum Leigubílstjóri jók hraðann á rauðu ljósi og ók á eldri konu Ásta endurráðin í Bláskógabyggð Þyrlan kölluð út vegna bílveltu Sjálfstæðisflokkur tekur Framsókn með sér í meirihluta Sögðust ekki ætla að setja börn í lokað búsetuúrræði en nú er tónninn annar Áhyggjur Barnaheilla, veikindi prinsessu og sjómannadagur Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Grunaður um fíkniefnabrot á reynslulausn og neitaði að gefa upp nafn Önnur stúlka grunuð um að hafa sparkað ítrekað í hana Kveður eftir ævilangt starf Styrkja fjarskiptainnviði vegna almyrkvans en ítreka forgang 112 Nærbuxur í sundi landlægt vandamál Sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjá meira
„Ég horfði á son minn brotna meira og meira, ár eftir ár“ Faðir manns sem glímdi við fíknivanda frá tólf ára aldri og svipti sig lífi tuttugu ára gamall segir kerfið hafa brugðist algjörlega. Neyðarvistun var eina úrræðið fyrir barn með fíknivanda og þar hafi strákurinn dvalið með langt gengnum eldri fíklum. Stofnanir sem eigi að grípa börn séu í raun völundarhús og drekkingarhylir. 22. september 2025 11:23