Þurrt um vestanvert landið en dálítil úrkoma austantil Atli Ísleifsson skrifar 7. nóvember 2025 07:12 Hiti á landinu verður á bilinu núll til sjö stig. Vísir/Vilhelm Eins og undanfarna daga beinir hæð yfir Grænlandi og lægðasvæði suður í hafi austan- og norðaustanátt til landsins þar sem víða verður fimm til þrettán metrar á sekúndu, en tíu til átján syðst á landinu.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að það verði skýjað austanlands og dálítil rigning eða slydda, en þurrt um landið vestanvert og bjart með köflum. Hiti verður á bilinu núll til sjö stig. Keimlíkt veður á morgun, en bætir í vind norðvestantil á landinu og hlýnar heldur. Á sunnudag er svo útlit fyrir áframhaldandi austan- og norðaustanátt, víða 5-13 m/s, en allhvasst eða hvasst allra syðst. Rigning eða slydda með köflum austantil, og einhver væta við suðurströndina, en yfirleitt þurrt á Norðvestur- og Vesturlandi. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Norðaustan og austan 5-13 m/s, en 13-18 norðvestantil og allra syðst. Rigning með köflum austanlands, en víða þurrt og bjart um landið vestanvert. Hiti 2 til 9 stig, mildast á Suðvesturlandi. Á sunnudag: Norðaustan og austan 5-15, en 13-20 við suðausturströndina. Væta með köflum, en yfirleitt þurrt á Norðvestur- og Vesturlandi. Hiti breytist lítið. Á mánudag: Norðaustan 8-18, hvassast suðaustantil. Él eða slydduél á Norður- og Austurlandi, annars þurrt að mestu. Kólnar í veðri. Á þriðjudag og miðvikudag: Norðaustan og norðan 8-13 og él, en þurrt á Suður- og Vesturlandi. Frost 0 til 7 stig. Á fimmtudag: Norðlæg eða breytileg átt og úrkomulítið. Svalt í veðri.
Veður Mest lesið Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Erlent „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ Innlent Hafði aldrei heyrt um handbolta fyrr en hún kynntist handboltaóðu þjóðinni Innlent „Mér þykir leiðinlegt að þetta gangi ekki betur“ Innlent Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Innlent Reyndi að frelsa Mangione vopnaður pítsaskera Erlent Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu Innlent Harma launalækkanir í fiskeldi á Vestfjörðum Innlent „Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Erlent Saksóknarar hóta uppreisn í Minneapolis Erlent Fleiri fréttir Mildri austanátt beint til landsins Áfram hvasst með suðurströndinni Slær áfram í storm á suðurströndinni Djúp lægð veldur stormi syðst á landinu Þurrt og bjart víða um landið Hvasst syðst á landinu Kólnandi veður og víða bjart Ákveðin austanátt á landinu öllu og víða snarpar hviður Víða rigning með köflum og bætir í vind í kvöld Róleg austanátt en hvessir á morgun Víða rigning og kólnar í veðri Minnkandi norðlæg átt en bætir í vind á morgun Þurrt og bjart suðvestantil en snjór og él víða Líkur á smá slyddu og snjókomu syðst Stíf norðvestlæg átt ásamt ofankomu Gæti slegið í storm og hringvegurinn lokaður Óvissustig á vegi milli Kirkjubæjarklausturs og Jökulsárlóns Gular veðurviðvaranir framundan Útlit fyrir hríðarveður á austasta hluta landsins í kvöld Frost og hægur vindur Norðaustlæg átt og allvíða él Veginum lokað við Skaftafell og fólk leitar í fjöldahjálparstöð Vara við eldingum á Suðausturlandi Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Áfram kalt á landinu Óvenjulega hlýr desember Áfram kalt og lægðir sækja að landinu Hægir vindar og snjókoma norðan- og austantil Þykknar upp og snjóar Allt að tuttugu stiga frost en bjart víða Sjá meira