Ruddust inn til manns og mölbrutu í honum tennurnar Árni Sæberg skrifar 9. september 2025 10:44 Héraðsdómur Reykjaness mun dæma í málinu. Vísir/Vilhelm Þrír hafa verið ákærðir fyrir að hafa í félagi ruðst inn í íbúð manns í heimildarleysi í febrúar árið 2023. Einn þeirra er ákærður fyrir að hafa í kjölfarið ráðist á manninn, meðal annars með þeim afleiðingum að tennur hans brotnuðu, í einhverjum tilvikum þannig að aðeins tannrótin var eftir.
Ákæran sem Vísir hefur undir höndum hefur verið rækilega nafnhreinsuð þannig að nöfn, kyn og aldur hinna ákærðu liggur ekki fyrir. Þó liggur fyrir að brotaþoli í málinu er karlmaður en í ákærunni segir að einn þeirra ákærðu hafi veist að honum með ítrekuðum höggum og spörkum í höfuð hans með þeim afleiðingum að hann hlaut brot bæði hægra og vinstra megin á kjálka, opið sár við höku vinstra megin, opið sár í munnholi, brot á tönnum þannig að í einhverjum tilvikum var aðeins tannrót eða hluti tannrótar eftir, tannarliðhlaup og langvarandi dofa í vinstri neðri vör. Ákærurvaldið krefst þess að ákærðu verði dæmdir til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Húsbrot varðar allt að eins árs fangelsi og stórfelld líkamsárás allt að sextán ára fangelsi. Þá er þess krafist fyrir hönd brotaþola að árásarmaðurinn verði dæmdur til að greiða honum miskabætur upp á tvær milljónir króna og kostnað vegna þóknunar réttargæslumanns hans, ellegar lögmannskostnað verði dómurinn ekki við kröfu hans um skipun réttargæslumanns.
Lögreglumál Dómsmál Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira