Neyðast til að endurbyggja grunnskólann vegna myglu Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 28. júlí 2025 20:34 Skólabygginguna má sjá aftarlega á myndinni, andspænis gula húsinu með rauða þakið. Vísir/Vilhelm Mygla kom upp í Grunnskólanum á Þórshöfn fyrr í vor. Sveitastjórnin stendur nú frammi fyrir vali um að rífa og byggja nýjan skóla á sama grunni eða reisa glænýjan skóla, en báðar lausnir kosta hundruði milljóna króna. Sveitarstjóri segir málið áfall fyrir kennslu á svæðinu. „
Það voru starfsmenn sem að fundu fyrir einkennum og þeir létu vita. Við gerðum strax ráðstafanir til þess að rannsaka þetta,“ segir Björn S. Lárusson, sveitarstjóri Langanesbyggðar í samtali við fréttastofu. Alls voru tekin 66 sýni og sýndi þriðjungur þeirra fram á myglu. Þar á eftir voru framkvæmdar rakamælingar og reyndist myglan vera nokkuð útbreidd. Árið 2017 hafði verið farið í mótvægisaðgerðir eftir að mygla kom upp en reyndust þær ekki nægar til að koma í veg fyrir útbreiðsluna. Björn segir mygluna vera að mestu leiti í sökkli og plötu sem leiðir síðan upp í dúk. Dúkurinn er með lífrænu lími sem myglan nærist á. Fyrsti hluti grunnskólans var byggður árið 1944 en viðbyggingum bætt við árin 1961, 1979 og 1996, samkvæmt fundargerð sveitarstjórnar Langanesbyggðar. Gert er ráð fyrir að það taki tvö ár að leysa málið. Sveitarfélagið á húsnæði fyrir og tekur annað á leigu þar sem kennsla tæplega sextíu grunnskólabarna skólans fer fram um sinn. Þrjár tillögur lagðar fram Birni var falið að leggja fram tillögur á hvað skyldi gera. „Ég lagði til í fyrsta lagi að það yrði farið í viðgerðir, í öðru lagi að við myndum rífa skólann og byggja nýjan á sama grunni og í þriðja lagi að byggja nýjan skóla á þessu skólasvæði, sem við köllum skólatorfan. Við létum reikna alla þessa kosti út og það var merkilega lítill munur. Lægsti kostnaðurinn var 690 milljónir sem var að gera við en það tryggir okkur ekki að við komum í veg fyrir þetta þannig að sú leið var sú sísta,“ segir hann. Grunnskólinn á Þórshöfn.Já.is „Sveitastjórn ákvað í ljósi þessa minnisblaðs sem ég lagði fyrir að kanna nánar að fara í þessa leið að byggja nýjan skóla á nýjum stað. Kostnaðurinn var mestur við það að rífa skólann og byggja aftur því þá þurfum við að rífa og byggja svo nýjan þar ofan á. Það væri betri að skilja skólinn eftir eins og hann er, byggja nýjan, og reyna svo að ráðstafa þessari byggingu, kannski fyrir einhverja aðra starfsemi eða rífa hana.“ Björn segir það hins vegar ekki liggja fyrir hvað yrði gert við gömlu bygginguna, skyldi sveitarstjórnin ákveða að byggja glænýja. „Það liggur ekki fyrir, við hugsanlega seljum hann eða hvernig sem það er.“ Stígi varlega til jarðar „Þetta er mikið áfall, sérstaklega fyrir kennsluna. Gríðarlegt áfall fyrir kennsluna. Svo númer tvö, þá kostar þetta okkur eitthvað á bilinu sjö til níu hundruð milljónir, fyrir lítið sveitarfélag, segir Björn. Aðeins liggi fyrir bráðabirgðaútreikningur á því hvað hver lausn skyldi kosta. Hann segir sveitarfélagið samt sem áður vera með afar lágt skuldahlutfall upp á 67 prósent og hátt hlutfall sem veltufé frá rekstri. Því þyrfti einungis að taka lán fyrir um helming kostnaðarins. „Nú erum við í þeim fasa að kafa nánar ofan í þetta. Það er alltaf þegar maður stendur frammi fyrir svona að það er mikil óvissa í útreikningunum. Ef við byggjum nýjan skóla erum við ekki að fara byggja nýtt minnismerki heldur við ætlum að gera þetta eins ódýrt og hægt er. Skólinn núna er barns síns tíma og upprunalega byggingin er orðin yfir áttatíu ára gömul.“ Það sé þó samt mikilvægt að gera nýja byggingu sem samræmist þörfum nútíma skólabarna. „Við stígum varlega til jarðar, við hugsum málið mjög vandlega. Þó að mikið liggi við þá ætlum við að vanda okkur í þessu ferli. Sveitastjórnin er algjörlega sammála um það að skoða þessar leiðir tvær, það er að segja rífa og byggja aftur eða byggja nýjan, og vill þá helst byggja nýjan. Það var falið mér og skólastjóra og hönnuði sem vinnur hjá okkur að kafa í þessar leiðir.“
Langanesbyggð Skóla- og menntamál Mygla Grunnskólar Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Slökkvilið í útkalli á Hringbraut Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Sjá meira