Uppgjör: Fram - Stjarnan 3-1 | Framarar sannfærandi Andri Már Eggertsson skrifar 7. júní 2025 16:30 vísir/Ernir Framarar unnu sannfærandi sigur gegn Stjörnunni 3-1 á heimavelli í 8. umferð Bestu deildar kvenna. Þetta var þriðji sigur liðsins í síðustu fjórum leikjum. Á Lambhagavellinum mættust liðin í sjötta og sjöunda sæti sem voru jöfn að stigum fyrir leik, með sömu markatölu og hafa bæði unnið FHL og Tindastól. Eitthvað þurfti því undan að láta í dag. Lily Anna Farkas braut ísinn og kom heimakonum yfir á 8. mínútu. Kamila Elise Pickett renndi boltanum fyrir markið þar sem Una Rós Unnarsdóttir las leikinn upp á tíu og lét boltann fara í gegnum klofið á sér sem kom varnarmönnum Stjörnunnar á óvart og Lily kom boltanum í netið af stuttu færi. Eftir mark heimakvenna fóru gestirnir að færa sig upp á skaftið. Stjörnukonur fóru að halda betur í boltann og bjuggu til góðar stöður á vallarhelmingi Framara. Elaina Carmen La Macchia, markmaður Fram, sá þó til þess að gestirnir skoruðu ekki og varði í tvígang virkilega vel. Undir lok fyrri hálfleiks skoraði Murielle Tiernan annað mark Framara. Sara Svanhildur Jóhannsdóttir átti laglega sendingu á fjærstöng þar sem Murielle var vel staðsett og potaði boltanum í markið. Færin urðu ekki fleiri í fyrri hálfleik og staðan var 2-0 í hálfleik. Á 62. mínútu skoraði Murielle Tiernan sitt annað mark og kom Fram 3-0 yfir. Una Rós Unnarsdóttir tók hornspyrnu sem Murielle stangaði í markið. Þegar tæplega níu mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma minnkaði Birna Jóhannsdóttir muninn eftir gott spil sem endaði með að hún renndi boltanum í markið. Birna hljóp beint í markið og náði í boltann. Fleiri urðu mörkin ekki og Fram vann 3-1 sigur. Af hverju vann Fram? Heimakonur spiluðu virkilega vel á köflum og voru skilvirkar fyrir framan markið. Þolinmæði var lykilatriði í sigri Fram þá sérstaklega í stöðunni 1-0 þegar Stjarnan náði að ýta heimakonum neðar á völlinn en þá stóð Elaina Carmen La Macchia vaktina vel í markinu. Murielle Tiernan bætti síðan við forystu Fram rétt fyrir hálfleik og heimakonur enduðu á að vinna 3-1 sigur. Hverjar stóðu upp úr? Elaina Carmen La Macchia, markmaður Fram, var frábær á milli stanganna. Hún varði vel bæði í stöðunni 0-0 og einnig á þeim kafla þegar Stjarnan fékk nokkur færi til að jafna í stöðunni 1-0. Murielle Tiernan var allt í öllu í sóknarleik Fram og skoraði tvö lagleg mörk. Murielle skoraði þetta mikilvæga þriðja mark sem endanlega tryggði Fram stigin þrjú. Sóknarleikur Stjörnunnar var ekki góður. Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir, Gyða Kristín Gunnarsdóttir og Fanney Lísa Jóhannesdóttir voru meðal þeirra sem fengu góð færi til að skora en fóru illa að ráði sínu Dómarinn [7] Dómari leiksins var Guðmundur Páll Friðbertsson og honum til aðstoðar voru Magnús Garðarsson og Kristinn Freyr Victorsson. Guðmundur Páll hélt vel utan um hlutina í dag og getur verið ánægður með sína frammistöðu á flautunni. Stemning og umgjörð Það var frítt á Lambhagavöllinn í dag í boði Raflax þar sem Stjarnan mætti í heimsókn. Áhorfendur hafa þó oft verið fleiri en þar spilar margt inn í eins og hvítasunnuhelgi og sumarmótin í knattspyrnu. „Okkur vantar þetta hugarfar sem Framarar hafa“ Jóhannes Karl var svekktur eftir leikvísir Jóhannes Karl Sigursteinsson, þjálfari Stjörnunnar, var svekktur eftir 3-1 tap gegn Fram. „Þær voru grimmari sóknarlega. Þær eru með markaskorara sem klárar færin og þær þurftu ekki mörg færi eða marga leikmenn hátt á vellinum þegar þær eru með leikmann sem getur skorað svona mörk. Það sem varð okkur að falli í dag voru einstaklingsmistök og slakur varnarleikur þar sem við gefum mörk.“ „Síðan vorum við ekki nógu góðar sóknarlega og mögulega vantar okkur þetta hugarfar sem Framarar hafa því þú þarft að trúa því að þú getir skorað þegar þú ert kominn inn í teig,“ sagði Jóhannes Karl svekktur eftir leik. Jóhannes var ekki ánægður með færanýtingu Stjörnunnar en hans konur fengu töluvert af tækifærum til þess að skora meira en eitt mark. „Þetta var leikurinn í hnotskun það er ekki nóg að komast á síðasta þriðjung. Við fengum nokkur augnablik inn í teig þar sem við vorum að spila vel og þar hefðu leikmenn átt að gera betur.“ „Við vorum meira með boltann og Framarar voru að elta og undir lokin varð leikurinn opnari en það skipti svo sem ekki máli því við náðum ekki að ógna almennilega. Það þarf miklu meira til svo maður eigi skilið stig í þessari deild,“ sagði Jóhannes að lokum. Besta deild karla Fram Stjarnan