Sport

Dag­skráin í dag: Úr­slitin ráðast í Ólafs­sal

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Úrslitin ráðast.
Úrslitin ráðast. vísir/Diego

Haukar taka á móti Njarðvík í oddaleik um Íslandsmeistaratitil kvenna í körfubolta. Það er svona það helsta sem er á dagskrá Stöðvar 2 Sport í dag.

Stöð 2 Sport

Klukkan 18.30 hefst útsending frá Ólafssal í Hafnafirði þar sem deildarmeistarar Hauka taka á móti Njarðvík í úrslitum Bónus-deildar kvenna í körfubolta. Um er að ræða oddaleik í einu skemmtilegasta einvígi síðari ára.

Klukkan 21.15 fer Körfuboltakvöld kvenna yfir leikinn, fær leikmenn í spjall og þar fram eftir götunum.

Vodafone Sport

Klukkan 18.50 mætast Sunderland og Coventry City í umspili um sæti í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta.

Klukkan 00.05 er leikur Stars og Jets í NHL-deildinni í íshokkí á dagskrá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×