Hittumst á rauðum sokkum 1. maí Finnbjörn A. Hermannsson, Kolbrún Halldórsdóttir, Magnús Þór Jónsson og Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifa 29. apríl 2025 12:00 Á alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins þann 1. maí á hverju ári söfnumst við saman, fögnum áfangasigrum verkalýðshreyfingarinnar og leggjum fram kröfur okkar til að móta framtíðarsýn um það samfélag sem við viljum byggja fyrir okkur sjálf og komandi kynslóðir. Í tilefni af Kvennaári 2025 munu konur taka yfir sviðið í baráttudagskrá stéttarfélaga um land allt. Við í samtökum launafólks höfum tekið höndum saman við samtök kvenna, femínista, fatlaðs fólks og hinsegin fólks og lýst því yfir að árið 2025 sé Kvennaár þar sem sérstök áhersla er lögð á upprætingu kynbundins ofbeldis og launamunar kynjanna. Þrátt fyrir að margt hafibreyst til batnaðar undanfarna áratugi er jafnréttisbaráttunni ekki lokið. Ísland er til að mynda fyrir neðan meðaltal í samanburði OECD og ofbeldi gegn konum er útbreitt. Við erum líka minnt á um þessar mundir að stöðugt þarf að standa vörð um mannréttindi – bakslags gætir í jafnréttismálum. Konur taka yfir sviðið um land allt Í Reykjavík mun tilvísun í 1. maí 1970 setja sterkan svip á gönguna. Sá dagur markaði upphaf Rauðsokkahreyfingarinnar þegar konur á rauðum sokkum mættu í kröfugöngu verkalýðsins með risastóra Venusarstyttu og lögðu fram kröfur sínar um kvenfrelsi. Fjölmiðlar sögðu frá því að Rauðsokkahreyfingin hefði borið styttuna í óþökk fulltrúaráðs verkalýðshreyfingarinnar og nokkuð stapp var um hvort þær fengju að taka þátt í göngunni en eftir miklar samningaviðræður fengu þær á endanum að ganga aftast. Líklega grunaði engan þá að Rauðsokkahreyfingin ætti eftir að breyta sögu tuttugustu aldarinnar. Nú, 55 árum síðar, býður fulltrúaráð verkalýðsins í Reykjavík konum á rauðum sokkum að ganga fremst í kröfugöngunni á Kvennaári 2025. Á útifundinum á Ingólfstorgi mun fundarstýra, ræðufólk, tónlistarfólk og táknmálstúlkur vera konur og þá munu Rauðsokkur stíga á svið og segja nokkur orð. Konur munu einnig kveða sér hljóðs víðar en í Reykjavík. Hringinn í kringum landið taka konur sér stöðu fremst í baráttudagskrám stéttarfélaganna í tilefni dagsins. Þær sjá um hátíðarræður, fundarstjórn, tónlist, skemmtiatriði, fánaburð, sýningahald, veitingar og fjölbreytta skipulagningu. Kvennakórar brýna raust sína víða og konur stilla saman strengi sína í fleiri en einum skilningi og sameinast gegn bakslagi í jafnréttisbaráttunni sem nú á sér stað. Við hvetjum allt launafólk til að sýna samstöðu í verki og taka þátt í kröfugöngu eða skipulagðri dagskrá samtaka launafólks um allt land. Gleðilegan baráttudag þann 1. maí. Höfundar eru Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM, Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, og Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stéttarfélög Jafnréttismál Verkalýðsdagurinn Mest lesið Nýtt Eden í Kópavogi? Markús Candi Skoðun X-R slær Borgarlínu verkefnið út af borðinu Linda Jónsdóttir Skoðun Það sem utanríkisráðherra vill ekki segja Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Hvaða átta milljarðar, Þorgerður? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Erum við tilbúin fyrir ESB-viðræður? Sjö lykiláhættuþættir sem þjóðin má ekki horfa framhjá Sigurður Sigurðsson Skoðun „Hann er svo klár maður“ - Hagfræðistofnun HÍ á hálum ís Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Einelti eða gráa svæðið? Vigdís Ásgeirsdóttir Skoðun Um „hágæða“ almenningssamgöngur Þórir Garðarsson Skoðun Hinn stóri hljómur í 100 ár Guðni Tómasson Skoðun Eigi veldur sá er varar! Stefán Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Hádegisblundur og pásur – Með viti fremur en striti Benedikt Jóhannsson skrifar Skoðun Írland v.s.Ísland. Munar bara einum staf? Andrés Pétursson skrifar Skoðun Um „hágæða“ almenningssamgöngur Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn stóri hljómur í 100 ár Guðni Tómasson skrifar Skoðun Það sem utanríkisráðherra vill ekki segja Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða átta milljarðar, Þorgerður? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Erum við tilbúin fyrir ESB-viðræður? Sjö lykiláhættuþættir sem þjóðin má ekki horfa framhjá Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nýtt Eden í Kópavogi? Markús Candi skrifar Skoðun Einelti eða gráa svæðið? Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun „Hann er svo klár maður“ - Hagfræðistofnun HÍ á hálum ís Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver ræður þegar á reynir? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Það er dýrt að liggja í polli eigin græðgi Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Týnd börn – við megum ekki líta undan Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Manst þú eftir náttúrunni? Rakel Hinriksdóttir skrifar Skoðun Eigi veldur sá er varar! Stefán Pálsson skrifar Skoðun Náttúran þarf virkt lýðræði Guðrún Schmidt skrifar Skoðun Við byrjum of seint: Um mæður, börn og ábyrgð okkar í umræðunni Elísabet Ósk Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Minna flækjustig og fleiri tækifæri í grænum útlánum Aðalheiður Snæbjarnardóttir skrifar Skoðun Íþróttabærinn Akranes – meira en aðstaða, þetta er líf Liv Åse Skarstad skrifar Skoðun X-R slær Borgarlínu verkefnið út af borðinu Linda Jónsdóttir skrifar Skoðun Vestmannaeyjar skila milljörðum - en fá hvað í staðinn? Jóhann Ingi Óskarsson skrifar Skoðun Hvers vegna flutti ég á Akranes? Sigurður Vopni skrifar Skoðun Hugleiðingar um leikskólamál í borginni Katrín Haukdal Magnúsdóttir skrifar Skoðun Sjálfstæðisbarátta nútímans Logi Einarsson skrifar Skoðun Hólar í Hjaltadal: Við getum gert betur Pálína Hildur Sigurðardóttir skrifar Skoðun Röskva vill sjá hjúkrunarfræðinga á sjúkrabíl og meiri nýsköpun í námi Dagbjört Lára Bjarkadóttir,Ríkharður Daði Ólafsson skrifar Skoðun Hvað er raunverulega hollt mataræði? Anna Lind Fells skrifar Skoðun Sykursýki 2 orðin að heimsfaraldri Anna Lind Fells skrifar Skoðun Áhættustjórnun í fiskeldi Otto Færovik skrifar Skoðun Gamblað með göng og líf lögð undir Eyjólfur Þorkelsson skrifar Sjá meira
Á alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins þann 1. maí á hverju ári söfnumst við saman, fögnum áfangasigrum verkalýðshreyfingarinnar og leggjum fram kröfur okkar til að móta framtíðarsýn um það samfélag sem við viljum byggja fyrir okkur sjálf og komandi kynslóðir. Í tilefni af Kvennaári 2025 munu konur taka yfir sviðið í baráttudagskrá stéttarfélaga um land allt. Við í samtökum launafólks höfum tekið höndum saman við samtök kvenna, femínista, fatlaðs fólks og hinsegin fólks og lýst því yfir að árið 2025 sé Kvennaár þar sem sérstök áhersla er lögð á upprætingu kynbundins ofbeldis og launamunar kynjanna. Þrátt fyrir að margt hafibreyst til batnaðar undanfarna áratugi er jafnréttisbaráttunni ekki lokið. Ísland er til að mynda fyrir neðan meðaltal í samanburði OECD og ofbeldi gegn konum er útbreitt. Við erum líka minnt á um þessar mundir að stöðugt þarf að standa vörð um mannréttindi – bakslags gætir í jafnréttismálum. Konur taka yfir sviðið um land allt Í Reykjavík mun tilvísun í 1. maí 1970 setja sterkan svip á gönguna. Sá dagur markaði upphaf Rauðsokkahreyfingarinnar þegar konur á rauðum sokkum mættu í kröfugöngu verkalýðsins með risastóra Venusarstyttu og lögðu fram kröfur sínar um kvenfrelsi. Fjölmiðlar sögðu frá því að Rauðsokkahreyfingin hefði borið styttuna í óþökk fulltrúaráðs verkalýðshreyfingarinnar og nokkuð stapp var um hvort þær fengju að taka þátt í göngunni en eftir miklar samningaviðræður fengu þær á endanum að ganga aftast. Líklega grunaði engan þá að Rauðsokkahreyfingin ætti eftir að breyta sögu tuttugustu aldarinnar. Nú, 55 árum síðar, býður fulltrúaráð verkalýðsins í Reykjavík konum á rauðum sokkum að ganga fremst í kröfugöngunni á Kvennaári 2025. Á útifundinum á Ingólfstorgi mun fundarstýra, ræðufólk, tónlistarfólk og táknmálstúlkur vera konur og þá munu Rauðsokkur stíga á svið og segja nokkur orð. Konur munu einnig kveða sér hljóðs víðar en í Reykjavík. Hringinn í kringum landið taka konur sér stöðu fremst í baráttudagskrám stéttarfélaganna í tilefni dagsins. Þær sjá um hátíðarræður, fundarstjórn, tónlist, skemmtiatriði, fánaburð, sýningahald, veitingar og fjölbreytta skipulagningu. Kvennakórar brýna raust sína víða og konur stilla saman strengi sína í fleiri en einum skilningi og sameinast gegn bakslagi í jafnréttisbaráttunni sem nú á sér stað. Við hvetjum allt launafólk til að sýna samstöðu í verki og taka þátt í kröfugöngu eða skipulagðri dagskrá samtaka launafólks um allt land. Gleðilegan baráttudag þann 1. maí. Höfundar eru Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM, Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, og Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.
Erum við tilbúin fyrir ESB-viðræður? Sjö lykiláhættuþættir sem þjóðin má ekki horfa framhjá Sigurður Sigurðsson Skoðun
Skoðun Erum við tilbúin fyrir ESB-viðræður? Sjö lykiláhættuþættir sem þjóðin má ekki horfa framhjá Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Við byrjum of seint: Um mæður, börn og ábyrgð okkar í umræðunni Elísabet Ósk Vigfúsdóttir skrifar
Skoðun Röskva vill sjá hjúkrunarfræðinga á sjúkrabíl og meiri nýsköpun í námi Dagbjört Lára Bjarkadóttir,Ríkharður Daði Ólafsson skrifar
Erum við tilbúin fyrir ESB-viðræður? Sjö lykiláhættuþættir sem þjóðin má ekki horfa framhjá Sigurður Sigurðsson Skoðun