Það sem er ósagt varðandi vinnubrögð hjá Háskólanum á Akureyri Þóra Sigurðardóttir skrifar 30. apríl 2025 13:03 Öllum nemendum Háskólans á Akureyri stendur til boða að útskrifast útfrá ónýtu lokaverkefni og/eða rannsókn. Það er niðurstaðan í mínu máli gegn skólanum Ég reyndi að uppræta óvönduð vinnubrögð tveggja starfsmanna HA. Forsögu málsins má lesa nánar hér: Fær 4 milljónir króna í bætur vegna framgöngu HA - RÚV.is og Stjórnarráðið | 1/2023 A gegn Háskólanum á Akureyri. Í stað þess að takast á við brot starfsmannanna þá var málið mitt þaggað niður. Það sem ekki kom fram í fréttunum er að: Eftir úrskurð vísindasiðanefndar fengu flestir sem komu að þessu máli í HA stöðuhækkun. Áfrýjunarnefndin í kærumálum háskólanema sá ástæðu til að spyrja aðstoðarrektor og skrifstofustjóra rekstorsskrifstofu hvort skólinn myndi biðja mig afsökunar á framkomu sinni. Svarið frá þeim: Afsökunar á hverju? Starfsmenn skólans komu af stað allskonar ógeðfelldu slúðri og rangyrði um mitt einkalíf. Slúðrið var ekki bara þeirra á milli þeirra heldur náði það einnig til annarra nemanda skólans. Sviðsforseti heilbrigðisvísindasviðs sendi póst á stúdentaráðið þar sem hún segir málið vera tilefnislaust og setur fram niðrandi athugasemd um mig. Hálftíma áður en hún sendi þennan póst (sem ég fékk afhent seinna í ferlinu) hafði hún og annar leiðbeinandinn hótað mér á fundi með þeim að taka rannsóknina af mér ef ég ætlaði mér að halda málinu til streitu, þ.e. að fá aðra leiðbeinendur í meistararannsókninni. Ég upplýsti stjórnendur að fleiri rannsóknir á vegum Háskólans á Akureyri væru að vafasamar og mögulega gætu flokkast undir brot á vísindalögum. Skólinn ýmist hunsaði upplýsingarnar, snéri þeim á hvolf og rangtúlkaði þau (leiðbeinendunum í hag) eða sagði að ég væri að misskilja hvernig málinu væri háttað. Þessi póstur lýsir nokkuð vel afstöðu skólans gagnvart óheiðarleika í rannsóknum sem eru á þeirra vegum. HA1 Vísindasiðanefnd upplýsti Háskólann á Akureyri að rannsóknin yrði felld niður og skólinn sendi staðfestingu til vísindasiðanefndar sama dag að henni yrði lokað strax (ég vissi ekki af þeirri ákvörðun fyrr en 6 vikum seinna). Viku eftir úrskurð vísindasiðanefndar fékk ég póst frá skólanum þar sem fram kom að þau hefðu samþykkt beiðnina og ég fengi aðra leiðbeinendur. Eftir að mér varð ljóst hver staðan væri þá lagði Háskólinn á Akureyri samt til að ég myndi skila inn þessari ónýtu rannsókn og útskrifast. Ég benti þeim á að gögnunum hefði verið eytt samkvæmt lögum vísindarannsókna og þá var mér boðið að segja munnlega frá niðurstöðunum og skila inn sem 60 eininga lokaverkefni á meistarastigi. Skólinn lagði fram aðra tillögu að ég myndi vinna 60 eininga lokaverkefni uppúr úr inngangi rannsóknarinnar sem ég hafnaði. Því lokaverkefnið mitt hefði þá verið byggt á heimild/doktorsrannsókn frá leiðbeinendunum mínum væri mögulega tengd heimildastuldi auk annarra atriða sem varða brot á vísindalögum. Vísindasiðanefnd hafði einnig afskipti af þeirri rannsókn og eftir því sem ég best veit hefur Háskóli Ísland fjarlægt þá hana af skemmunni. Ég leitaði til menntamálaráðuneytisins, síðar háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið vegna málsins. Því mér fannst gæði námsins ekki vera í fyrirrúmi hjá stjórnendum skólans og hagsmunir einstakra starfsmanna teknir fram yfir hagsmuni skólans og nemenda. Álit ráðuneytisins var að skólinn braut á mér í málsmeðferðinni.HA2 Í sama pósti frá HA til ráðuneytisins segir skólinn að tillögurnar tvær flokkast undir vandaðar rannsóknir á þeirra vegum.HA3 Ráðuneytið virðist ekki hafa vald til þess að taka afstöðu hvort tillögur skólans standast lög eins og fram kom í úrskurðinum frá þeim.HA4 Eftir stendur að öllum nemendum Háskólans á Akureyri stendur til boða að útskrifast útfrá ónýtri rannsókn því það sem gildir fyrir einn nemanda gildir fyrir alla. Ég hef aftur óskað eftir úttekt á þessum vinnubrögðum. En skólinn ætlar sér ekki að taka þetta mál fyrir og hefur ýmist sagt málið vera útrunnið eða lokið af þeirra hálfu.HA5 Skólinn hélt því ranglega fram við ráðuneytið, áfrýjunarnefndina í kærumálum háskólanema og ríkislögmann að ég bæri ábyrgð á því að vísindasiðanefnd hefði afturkallað leyfið m.a. vegna þess ég væri slakur nemandi, en eftir aðkomu RÚV þá breyttu þau um stefnu og kalla þetta mál núna akademískt frelsi leiðbeinenda. Ég vil koma því á framfæri með þessari grein að það virðist vera lítið eftirlit með störfum háskóla á Íslandi. Í lagalegum skilningi þá er háskólinn sjálfstæð stofnun sem á að hafa eftirlit með sjálfum sér en gæðastjórinn og gæðaráð innan skólans er ekki upp á marga fiska eins málið mitt ber vitni um. Það fer meiri vinna, tími og peningar í að þagga mál niður en að takast á við þau. Gæðamat háskóla (Icelandic Agency for Quality Assurance) sér einnig um eftirlit en þau vinna einungis úr þeim upplýsingum sem háskólinn afhendir þeim. HA6 Að mörgu leyti minnir Háskólinn á Akureyri mig á Mörð Valgarðsson úr Njálssögu. Óheiðarleikinn er slíkur. Skólinn var í senn gerandinn í málinu, lögreglan, saksóknarinn og dómarinn. Niðurstaðan skólans í eigin máli var að ekkert saknæmt hefði átt sér stað hvorki fyrir né eftir úrskurð vísindasiðanefndar og því þarf ekki að skoða málið nánar. Það er mín skoðun að óheiðarlegar rannsóknir valda samfélagu skaða. Háskólinn á Akureyri ætti þess vegna ekki að þagga nemendur niður sem benda á óheiðarleg vinnubrögð í rannsóknum á þeirra vegum. Höfundur er fyrrverandi nemandi Háskólans á Akureyri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Háskólar Akureyri Mest lesið Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Þegar ríkið tekur reikninginn Erna Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þess vegna segjum við NEI þann 29. ágúst Þorvaldur Þorvaldsson skrifar Skoðun Ég kýs JÁ ! - Hvers vegna? skrifar Skoðun Kveðja til hleðslukvíðans Úlfar Linnet skrifar Skoðun Samkeppnishæfni Íslands Ingvar Þóroddsson skrifar Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Virðir Alþingi úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst? Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Stöðug króna, afnám verðtryggingar og nýtt hlutverk Íslands í alþjóðlegu fjármálakerfi Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Traust er ekki sjálfgefið Hilmar Freyr Gunnarsson skrifar Skoðun Evrópusambandið, skjól frá Bandaríkjunum? Guttormur Þorsteinsson skrifar Skoðun Þegar ríkið tekur reikninginn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Falleinkunn heima, en hugurinn í Brussel Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Tökum slaginn fyrir börnin Tótla I. Sæmundsdóttir,Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir skrifar Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Sjá meira
Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Stöðug króna, afnám verðtryggingar og nýtt hlutverk Íslands í alþjóðlegu fjármálakerfi Eggert Guðmundsson skrifar