Mikil reiði eftir árásina í Kasmír Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 23. apríl 2025 06:56 Hin látnu eru tuttugu og sex hið minnsta. AP Photo/Dar Yasin Mikil reiði er á meðal almennings á Indlandi eftir að byssumenn gerðu árás á hóp ferðamanna í Kasmír héraði og drápu tuttugu og sex hið minnsta.
Árásin var gerð í gærkvöldi í bænum Pahalgam í Himalayafjöllunum sem er vinsæll áningarstaður ferðamanna og er í þeim hluta Kashmír sem Indverjar stjórna. Flestir hinna látnu eru sagðir Indverjar en að minnsta kosti tveir eru útlendingar, einn frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum og annar frá Nepal. Enn er óljóst hverjir stóðu að baki árásinni en Indverjar og Pakistanar hafa lengi deilt um yfirráð yfir héraðinu og stjórna nú bæði löndin hlutum þess. Fréttaritari BBC á staðnum segir að þarlendir miðlar fullyrði sumir hverjir að hópur vopnaðra manna sem hafi tengsl við pakistanska uppreisnarhópa hafi staðið að baki árásinni en enginn hefur þó lýst ábyrgð á henni á hendur sér. Narendra Modi forsætisráðherra Indlands var í opinberri heimsókn til Sádí Arabíu þegar árásin var gerð sem hann hefur nú hætt við og er á heimleið.
Indland Tengdar fréttir Á þriðja tug látnir eftir árás á ferðamenn í Kasmír Tuttugu og fjórir hið minnsta eru látnir eftir að hópur manna hóf skothríð í átt að ferðamönnum í Kasmír-héraði í Indlandi fyrr í dag. 22. apríl 2025 15:04 Mest lesið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Erlent Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent Fleiri fréttir „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Sjá meira
Á þriðja tug látnir eftir árás á ferðamenn í Kasmír Tuttugu og fjórir hið minnsta eru látnir eftir að hópur manna hóf skothríð í átt að ferðamönnum í Kasmír-héraði í Indlandi fyrr í dag. 22. apríl 2025 15:04