Engar upplýsingar fást um tengsl konunnar við barnið Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 5. nóvember 2024 15:20 Samkvæmt heimildum fréttastofu var konan nýkomin úr húsnæði fyrir hælisleitendur sem rekið er í gömlum leikskóla við Sólheima. Já.is Embætti ríkislögreglustjóra hyggst ekki veita frekari upplýsingar um umfangsmikla lögregluaðgerð í Sólheimum í Reykjavík í gær þar sem kona vopnuð hnífi með ungt barn var yfirbuguð.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og sérsveit ríkislögreglustjóra voru með mikinn viðbúnað í Sólheimum í Reykjavík í hádeginu í gær eftir að tilkynning barst um konu þar í miklu ójafnvægi fyrir utan hús við götuna. Í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gær sagði að konan hefði verið með lítið barn meðferðis og óttast að hún myndi vinna því og sjálfri sér skaða, en konan var með hníf í hendinni. „Fjöldi viðbragðsaðila var kallaður á vettvang, meðal annars samningamenn frá embætti ríkislögreglustjóra, en eftir töluverðar samningaviðræður tókst loks að yfirbuga konuna, en hvorki hana né barnið sakaði í aðgerðum lögreglunnar,“ segir í tilkynningunni. Í framhaldinu hafi konunni verið komið undir læknishendur og barninu í umsjá barnaverndaryfirvalda. Lokað var fyrir umferð um Sólheima á meðan aðgerðum lögreglunnar stóð, en lokunum var aflétt um eittleytið. Ekki var greint frá tengslum konunnar við barnið í tilkynningu til fjölmiðla. Samkvæmt heimildum fréttastofu hafði konan nokkru áður komið út úr húsnæði sem býður upp á úrræði fyrir hælisleitendur í Sólheimum 29-35 þar sem lengi var starfræktur leikskóli. Helena Rós Sturludóttir, samskiptastjóri hjá ríkislögreglustjóra, segir að engar frekari upplýsingar verði veittar um málið enda sé rannsókn þess í fullum gangi.
Reykjavík Lögreglumál Tengdar fréttir Yfirbuguðu konu með lítið barn og hníf í hendi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og sérsveit ríkislögreglustjóra voru með mikinn viðbúnað í Sólheimum í Reykjavík í hádeginu eftir að tilkynning barst um konu þar í miklu ójafnvægi fyrir utan hús við götuna. 4. nóvember 2024 14:12 Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Fleiri fréttir Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Sjá meira
Yfirbuguðu konu með lítið barn og hníf í hendi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og sérsveit ríkislögreglustjóra voru með mikinn viðbúnað í Sólheimum í Reykjavík í hádeginu eftir að tilkynning barst um konu þar í miklu ójafnvægi fyrir utan hús við götuna. 4. nóvember 2024 14:12