Sprite Zero Klan gefur út SS pylsulagið í fullri lengd SS 1. október 2024 08:30 Daníel Óskar Jóhannesson (t.v.) og Kolbeinn Sveinsson skipa dúettinn Sprite Zero Klan sem sigraði í keppninni um bestu nýju útgáfuna af SS pylsulaginu sumarið 2023. Nú er lagið komið út á Spotify. Við höfum flest heyrt nýja og ferska útgáfu af SS pylsulaginu hljóma í auglýsingum í sumar. Útgáfu þar sem rappi um flest það sem tengist þessum þjóðarrétti Íslendinga er skeytt á afar skemmtilegan máta við viðlagið sem við þekkjum öll svo vel.
Lagið er flutt af strákunum í Sprite Zero Klan en hún bar sigur úr býtum í keppninni um bestu útgáfu SS pylsulagsins síðasta sumar. Eftir góð viðbrögð áheyrenda við flutningi lagsins í heild sinni, og frábærar viðtökur á tónleikum, ákvað hljómsveitin að gefa lagið út í fullri lengd. Kolbeinn Sveinsson, meðlimur Sprite Zero Klan, segir að hugmyndin hafi undið upp á sig og grunnurinn að þessari löngu útgáfu lagsins orðið til þegar hljómsveitin var að vinna innsendinguna, í samstarfi við Ásgeir Orra Ásgeirsson, í keppnina. „Pylsuvísur sem þessar lúta sömu lögmálum og slöngur landsins: mega alls ekki vera of stuttar og skulu ávallt unnar af alúð,“ segir Kolbeinn og bætir við að það hafi aldrei verið spurning um að taka þátt í keppninni: „Þetta er auðvitað snilldar stef sem maður ólst upp við og er í raun ómissandi hluti af íslenskri dægurmenningu. Því vorum við alltaf að fara að vera með í þessari keppni, það er stórgaman að fá að setja svona klassík í nýjan búning.” Hafþór Úlfarsson, deildarstjóri markaðsdeildar SS, fagnar einnig útgáfunni. „Það er auðvitað frábært að þessi vel heppnaða keppni hafi getið af sér þessa skemmtilegu útgáfu. SS pylsulagið er auðvitað vel þekkt meðal þjóðarinnar og tilgangur keppninnar í fyrra var að gefa því nýtt líf í nýjum búningi, sem sannarlega tókst. Við erum mjög ánægð með hvað lagið hefur fengið mikla athygli,“ segir Hafþór. Lagið er komið út á Spotify og geta aðdáendur Sprite Zero Klan og aðrir því skellt laginu á í næstu grillveislu á meðan SS pylsurnar hitna á grillinu.
Skúrinn Tónlist Mest lesið Var rænd af barnahópi á Filippseyjum Lífið Vinslit, ofbeldi, líkamssmánun og niðurlæging í ANTM Lífið Salka Sól látin fara Lífið Draumalíf: Fékk Ísland á heilann átta ára Áskorun Jóhanna Vigdís greindist með MS Lífið Mun aldrei flytja aftur heim Lífið „Kalli“ setti Höllu í óþægilega stöðu með óvæntri gjöf Lífið Krakkatía vikunnar: Api, fjall og Barbie Lífið „Hvernig er hægt að deyja áður en maður fæðist?“ Lífið Lagið minnti á sig í sambandsslitunum Tónlist Fleiri fréttir Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira