Sigmundur Davíð furðu lostinn yfir nýrri mannréttindastofnun Jakob Bjarnar skrifar 21. júní 2024 14:32 Sigmundur Davíð telur furðu sæta að Sjálfstæðisflokkurinn (og Framsóknarflokkurinn ef hann snérist um eitthvað annað en sig sjálfan) skuli hafa samþykkt mannréttindastofnun Vinstri grænna. vísir/vilhelm Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins er furðu lostinn vegna mannréttindastofnunar sem samþykkt var í dag á þinginu að koma á koppinn.
Hvernig dettur Sjálfstæðisflokknum í hug, og Framsóknarflokknum ef hann væri ekki löngu farinn að samþykkja allt, að fallast á áform Vinstri grænna um enn eina mannréttindastofnunin, spyr Sigmundur Davíð dolfallinn. „Stokkhólmsheilkennið virðist ekkert hafa minnkað þrátt fyrir að Katrín hyrfi á brott og VG færi í 3%. Sem fyrr snýst þetta allt um umbúðir. Þ.a. ef einhverjir gera athugasemd við stofnun sem heitir Mannréttindastofnun hljóti þeir að vera á móti mannréttindum. Heiti þingmála eru farin að skipta meira máli en innihaldið.“ Nóg af mannréttindastofnunum fyrir Sigmundur Davíð spyr enn og hann spyr hvort enn ein slík stofnunin muni auka mannréttindi? En Íslendingar reka þegar Mannréttindaskrifstofu Íslands og nokkrar stofnanir eru á sviði mannréttinda sem hefðu hlaupið í þessi mál ef þurfa þykir. „Á lokasprettinum var stofnunin réttlætt sérstaklega með því að hún muni standa vörð um réttindi fatlaðs fólks og gera okkur kleift að staðfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Raunin er sú að það hefði verið hægt að fullgilda samninginn fyrir löngu án þessarar nýju stofnunar. Auk þess hefði verið betra að hafa t.d. sérstakan umboðsmann fatlaðs fólks fremur en að nýta réttindagæslu þess hóps til að réttlæta allt annars konar stofnun.“ Og áfram spyr Sigmundur Davíð hvers konar mannréttindi þessi mannréttindastofnun muni verja? „Mun þessi stofnun verja grundvallar mannréttindi eins og „sakleysi uns sekt er sönnuð”, „jafnræði fyrir lögum”, persónuréttindi, eignarrétt, málfrelsi og önnur borgaraleg réttindi eða mun hún fyrst og fremst snúast um hugðarefni nýja vinstrisins?“ Telur um að ræða atvinnubótavinnu fyrir Vinstri græn Nei, Sigmundur Davíð telur það ekki líklegt heldur segir hann hinni nýju stofnun fyrst og fremst ætlað að skapa fleiri störf fyrir VG-liða utan Alþingis svo beita megi henni gegn öllum frumvörpum, þar með talið frá Sjálfstæðisflokki, sem ætlað er að ná til dæmis tökum á hælisleitendavandanum. Sjálfstæðisflokkurinn fékk „að klára eitt lítið útlendingamál, útþynnt í 4. eða 5. tilraun gegn því að fallast á nýja stofnun sem gæti beitt sér gegn slíkum frumvörpum í framtíðinni.“ Og Sigmundur Davíð er ekki búinn að gleyma hatursorðræðunámskeiðinu sem Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi forsætisráðherra hugðist koma á koppinn. „Hafið líka í huga að stofnunin átti að koma til sögunnar sem liður í áformum ríkisstjórnarinnar um að setja alla landsmenn, 3-103 ára, á námskeið um hvernig þeim bæri að hugsa og tjá sig. Þetta stækkar að vísu báknið og fellur þannig að stefnu ríkisstjórnarinnar en ég spyr samt; Kemst ekkert annað að en umbúðir og yfirlýst markmið? Er borin von að menn ræði innihald og raunveruleg áhrif?“ Sigmundur Davíð er greinilega ekki hrifinn og spyr hvort næsta verkefni verði ekki það að fá nafni stofnunarinnar breytt í „Fólksréttindastofnun“.
Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar Miðflokkurinn Vinstri græn Sjálfstæðisflokkurinn Framsóknarflokkurinn Mannréttindi Alþingi Rekstur hins opinbera Tengdar fréttir Setja á fót mannréttindastofnun eftir ítrekuð tilmæli Frumvarp um að koma á fót Mannréttindastofnun Íslands er komið í samráðsgátt stjórnvalda. Ísland hefur ítrekað fengið tilmæli og athugasemdir frá alþjóðlegum eftirlitsaðilum um að koma slíkri stofnun á fót. 12. júní 2023 18:44 Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Fleiri fréttir Þyrlan kölluð til vegna gruns um að maður hafi fallið í Ölfusá „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sjá meira
Setja á fót mannréttindastofnun eftir ítrekuð tilmæli Frumvarp um að koma á fót Mannréttindastofnun Íslands er komið í samráðsgátt stjórnvalda. Ísland hefur ítrekað fengið tilmæli og athugasemdir frá alþjóðlegum eftirlitsaðilum um að koma slíkri stofnun á fót. 12. júní 2023 18:44