Innlent

Mynd­band af fólskulegri stunguárás í Valshverfinu

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Árásin átti sér stað síðdegis í gær.
Árásin átti sér stað síðdegis í gær. Aðsend

Maður veittist að tveimur mönnum með hníf í versluninni OK Market í Valshverfinu í gær. Hann var handtekinn og standa yfirheyrslur enn yfir.

Myndband úr öryggismyndavél verslunarinnar sýnir manninn ganga inn í verslunina og ráðast að því er virðist tilefnislaust á tvo menn á bakvið afgreiðslukassann með hníf. Þeim tekst að hrinda honum í burtu frá sér og komast undan án þess að særast alvarlega.

Árásin átti sér stað á milli fjögur og fimm í gær. 

Lögreglan segir að meta verði hvort færa eigi manninn fyrir dómara og fara fram á gæsluvarðhaldsúrskurð. Hann hefur verið dæmdur í fangelsi hér á landi áður og verið sakfelldur fyrir brot eins og líkamsárás, húsbrot, valdstjórnarbrot og brot á sóttvarnarlögum.

Uppfært 21:04:

Maðurinn er um þrítugt og hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald í kjölfar yfirheyrslu hjá lögreglunni í dag. Þeir sem urðu fyrir árásinni voru báðir fluttir á slysadeild og er líðan þeirra eftir atvikum samkvæmt lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×