Innlent

Hættir við mál­sókn gegn ríkinu vegna að­gengi að Grinda­vík

Samúel Karl Ólason skrifar
Stefán Kristjánsson er forstjóri og eigandi fiskvinnslufyrirtækisins Einarhamar í Grindavík
Stefán Kristjánsson er forstjóri og eigandi fiskvinnslufyrirtækisins Einarhamar í Grindavík Einhamar/Vísir

Maður sem höfðað mál á hendur íslenska ríkinu vegna lokunar Grindavíkur hefur hætt við. Stefán Kristjánsson, forstjóri og eigandi fiskvinnslufyrirtækisins, hætti við þar sem búið er að opna á aðgengi fólks að bænum.

Í yfirlýsingu frá lögmanni hans, Jón Steinari Gunnlaugssyni, segir að Stefán hafi náð fram dómskröfum sínum án þess að fella þyrfti dóm um þær.

Þegar Stefán opinberaði málsókn sína sagðist hann njóta stjórnarskrárvarins réttar til að gæta eigna sinna og reksturs og að fá að vera á heimili sínu í Grindavík. Búið væri að troða á þeim réttindum.

Sjá einnig: Stefnir íslenska ríkinu vegna takmarkana á að­gengi í Grindavík

Frá og með deginum í dag fá Grindvíkingar nánast óskertan aðgang að bænum. Hins vegar er talið að þar geti enn leynst hættur.

Þegar Lögreglustjórinn á Suðurnesjum gerði grein fyrir ákvörðun sinni um aukið aðgengi í gær tilgreindi hann nokkra fyrirvara vegna öryggismála. Innviðir voru sagðir í lamasessi og sprungur geti opnast án fyrirvara. Fólk færi inn bæinn á eigin ábyrgð en Grindavík væri, sem stæði, ekki staður fyrir börn.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×