Innlent

Gengur sorg­mæddur og dapur frá borði

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Vilhjálmur Birgisson segist ganga dapur frá borði.
Vilhjálmur Birgisson segist ganga dapur frá borði. Vísir/Vilhelm

Breiðfylking ASÍ sleit kjaraviðræðum við Samtök atvinnulífsins í dag og lýsir Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness miklum vonbrigðum með niðurstöðuna. 

Vilhjálmur Birgisson segist hafa gengið sorgmæddur og dapur frá borði. Launaliðir og önnur meginatriði hafi verið frágengin en ekki sé hægt að ætlast til þess að launafólk sé bundið hófstilltum kjarasamningi til margra ára án forsenduákvæða um verðbólgu og vexti.

Fordæmalausar kröfur

Hann segir forsenduákvæðin tryggja að ábyrgðin og áhættan liggi ekki öll á herðum launafólks og að aldrei hafi langtímasamningur verið gerður án slíkra ákvæða. Ekki sé hægt að samþykkja hóflegar hækkanir ef aðrir axli síðan ekki ábyrgð sína.

„Samtök atvinnulífsins þurfa að svara íslensku þjóðinni, íslenskum fyrirtækjum og samfélagið í heild sinni hvað þeim gengur til,“ segir Vilhjálmur í samtali við fréttastofu.

Forsenduákvæðin eru grundvölluð á því að tryggja það að hægt sé að ganga aftur að borði ef markmið um verðbólgu og vexti nást ekki eins og samningurinn útlistar þau.

„Á fólk að vera bundið í kjarasamningi til þriggja, fjögurra ára? Án þess að hafa nokkra útgönguleið ef aðrir í samfélaginu taka síðan ekki þátt? Nei, aldrei hefur slíkt verið gert í langtímasamningi. Aldrei.“

Funda á mánudag

Í tilkynningu frá breiðfylkingunni segir að henni finnist furðulegt að Samtök atvinnulífsins séu ekki reiðubúin að festa ákvæði um verðbólgu- og vaxtalækkun í samninginn.

„Krafan myndi þýða að launafólk eitt ber ábyrgðina og áhættuna af afleiðingum þess ef markmið samnings nást ekki,“ segir í tilkynningunni.

„Breiðfylkinging stendur sameinuð í kröfum sínum og í ákvörðun sinni um að lýsa viðræður árangurslausar. Formenn þeirra sambanda og félaga sem standa að Breiðfylkingunni munu funda saman strax á mánudag og nýta tímann í millitíðinni til upplýsingagjafar og samráðs við sitt bakland.“


Tengdar fréttir

Breiðfylkingin slítur kjaraviðræðum

Breiðfylkingin hefur slitið kjaraviðræðum sínum við Samtök atvinnulífsins um nýjan kjarasamning. Breiðfylkingin segir viðræður árangurslausar 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×