Erlent

Segir aukinn þunga munu færast í á­rásir á Gasa

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Netanjahú (fyrir miðju) heimsótti ísraelska hermenn á norðurhluta Gasa í dag.
Netanjahú (fyrir miðju) heimsótti ísraelska hermenn á norðurhluta Gasa í dag. Avi Ohayon/AP

Forsætisráðherra Ísraels hefur heitið því að ríkið muni ganga enn harðar fram í baráttu sinni við Hamas-samtökin og árásum á Palestínu á næstu dögum.

Breska ríkisútvarpið hefur þetta eftir Benajmín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels. Hann hafi sagt meðlimum í flokki sínum frá heimsókn sinni á Gasaströndina í morgun. Þá á hann að hafa sagt að hernaðaðaraðgerðum Ísraels á Gasa væri „langt frá því lokið“.

Í gær sagði Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, að hann teldi Ísrael eiga að draga úr þunga árása sinna á Gasa. Samkvæmt heilbrigðisyfirvöldum Hamas á Gasa hafa yfir 20 þúsund manns verið drepnir í árásum Ísraelsmanna á Gasa, stór hluti þeirra börn.

Greint hefur verið frá því að minnst sjötíu hafi látist í loftárásum á Al-Maghazi flóttamannabúðirnar á Gasa í gær, aðfangadagskvöld. 

Árásum hvergi nærri lokið

Netanjahú hefur áður látið sambærileg ummæli falla, og heitið því að Hamas-liðum verði útrýmt í eitt skipti fyrir öll, og þeim rúmlega 130 gíslum sem þeir tóku í árásum á Ísrael snemma í október verði komið heilu og höldnu til síns heima. 

Í dag á hann að hafa upplýst samflokksmenn sína í Likud-flokknum um að stríðinu væri hvergi nærri lokið. Hermenn sem hann hafi hitt á Gasa hafi beðið hann um að halda stríðsrekstrinum áfram.

„Við munum ekki hætta. Við munum berjast áfram og gefa í átökin á næstu dögum. Þetta verður löng barátta sem er ekki nálægt því að vera lokið,“ er haft eftir Netanjahú. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×