Lífið samstarf

Hlýjar jóla­gjafir sem gleðja

Icewear
Sherpa ullarjakki sem hefur verið mjög vinsæll.
Sherpa ullarjakki sem hefur verið mjög vinsæll.

Icewear býður upp á mikið úrval af hlýjum jólagjöfum á mjög breiðu verðbili þar sem allir ættu að geta fundið jólagjafir fyrir fjölskyldu og vini.

„Hlýjar jólagjafir, eins og grunnlag, ullarteppi, ullarpeysur, góðir hanskar, húfur og hlýir sokkar eru mjög vinsælar jólagjafir sem gleðja alla,“ segir Elma Bjartmarsdóttir, markaðsstjóri Icewear. „Við bjóðum upp á mikið úrval af grunnlagi og ullarteppum sem veita hlýju á köldum vetrardögum og fegra um leið heimilið. Hlýir sokkar eru líka klassísk gjöf sem gleðja alla og svo sannarlega jólagjöf sem öllum þykir gott að fá. Í verslunum okkar má finna margar mismunandi tegundir sokka.“

Hlýir sokkar eru líka klassísk jólagjöf sem öllum þykir gott að fá.

Ýmsar nýjar og spennandi vörur eru á boðstólum fyrir þessi jólin að sögn Elmu. „Icewear býður m.a. upp á nýjar fallegar loðhúfur og eyrnabönd, sherpa ullarjakka, flíspeysur í nýjum litum og svo hafa hanskarnir Þingvallavatn notið mikilla vinsælda en þeir eru einangraðir úr íslenskri ull og eru auk þess vatnsheldir.“

ný mynd icewear samstarf

Vatnajökull er svo konungurinn í íslensku ullareinangrunarlínu Icewear. Úlpan er einangruð með 200 gr. af íslenskri ull og er auk þess með 200 gr. ullareinangrun í léttari innri jakka sem hægt er að renna úr og nota stakan en úlpan er þrír jakkar í einum. „Úlpan er nýlega komin í verslanir og hefur vakið mikla athygli fyrir falleg smáatriði og töff snið.“

Vatnajökull er svo konungurinn í íslensku ullareinangrunarlínu Icewear.

Icewear á rúmlega 50 ára sögu með ullinni en allt byrjaði þetta með lopapeysunni á lítilli prjónastofu á Hvammstanga. „Íslenska ullin er búin að halda hita á þjóðinni í gegnum aldirnar og nú framleiðir Icewear heila vörulínu úr íslensku ullinni sem er notuð sem einangrun í staðinn fyrir dún eða aðrar polyester fyllingar. Vörulínan er mjög breið og spannar allt frá buxum yfir í þykkari úlpur.“

Heidros ullarteppin eru hlý, falleg og setja skemmtilegan svip á rýmið.

Þú finnur jólagjöfina á Icewear.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×