Forsvarsmenn ísraelska hersins hafa haldið því fram að Hamas-liðar hafi haldið til í sjúkrahúsinu og jafnvel geymt gísla þar eða í umfangsmiklum göngum þar undir.
Eitt myndband sem birt var sýnir hvernig róbóta eða hundi með myndavél á bakinu er slakað niður, ofan í göng við sjúkrahúsið. Sjá má hvernig göngin líta út og að á enda þeirra er rammgerð hurð, sem Ísraelar segja sprengjuþolna. Á hurðinni er gat sem hægt er að opna innan frá og skjóta út um.
Göngin að hurðinni eru bein og þröng svo erfitt að er komast upp að henni, sé hún yfir höfuð varin.
Come join us on a deep-dive into the Hamas tunnel complex underneath the Shifa Hospital.
— Eylon Levy (@EylonALevy) November 19, 2023
Hamas' cynical exploitation of hospitals as human shields, in flagrant violation of international law, has nullified their protected status and put people at risk. pic.twitter.com/nDm7ESrDqV
Ísraelar segja að það muni taka tíma að skoða gögnin, vegna varna og mögulegra gildra sem hafi mögulega verið lagðar fyrir Ísraela. Myndbandið ku hafa verið tekið þann 17. október og var birt um helgina.
Ísraelar segjast óttast að verði sprengingar í göngunum, gætu hluta sjúkrahússins hrunið en þar eru enn um þrjú hundruð sjúklingar og heilbrigðisstarfsmenn.
Hamas-liðar hafa grafið umfangsmikið net ganga undir Gasaströndinni. Þau geta verið notuð til að flytja vígamenn og hergögn um svæðið án þess að Ísraelar sjái og jafnvel til að koma aftan að ísraelskum hermönnum. Göng Hamas eru oft búin ljósavélum, loftræstingu, vatnsleiðslum og birgðum af mat og gíslar sem búið er að sleppa segja að þeim hafi verið haldið í herbergjum ofan í þessum göngum.
Leiðtogar Hamas eru líka taldir geta notað göngin til að komast hjá því að vera handsamaðir.
Sjá einnig: Innrás yrði gífurlega erfið og framhaldið ekki síður
New York Times er meðal þeirra miðla sem hafa staðfest að þetta myndband og önnur sambærileg, hafi verið tekin upp við al-Shifra sjúkrahúsið.
Myndir og myndbönd af gíslum
Myndefni úr öryggismyndavélum í og við sjúkrahúsið sýna einnig að þann 7. október, þegar Hamas-liðar réðust á byggðir víða í suðurhluta Ísrael og tóku meðal annars fleiri en tvö hundruð gísla, að einhverjir gíslar voru fluttir á sjúkrahúsið.
Í færslum á X (áður Twitter) segja Ísraelar þetta sanna að Hamas-liðar hafi notað sjúkrahúsið þann 7. október.
NEW VIDEO: Foreign hostages being brought into Gaza s Al-Shifa hospital on October 7th. CCTV video released by the IDF. pic.twitter.com/80OdekG9UK
— Trey Yingst (@TreyYingst) November 19, 2023
Gíslarnir sem um ræðir eru frá Taílandi og Nepal en ekki er vitað hvar þeir eru niðurkomnir. Á blaðamannafundi um helgina sögðu Ísraelar að særður hermaður sem hefði verið fluttur á sjúkrahúsið þann 9. nóvember, eftir að hún særðist í loftárási, hafi verið tekinn af lífi.
These findings prove that the Hamas terrorist organization used the Shifa Hospital complex on the day of the October 7 Massacre as terrorist infrastructure. 2/2 pic.twitter.com/2UzlpKrNnv
— Israel Defense Forces (@IDF) November 19, 2023
Einnig hafa verið birtar myndir af meintum Hamas-liðum leggja ísrealskum herbílum, sem teknir voru í Ísrael, við sjúkrahúsið þann 7. október.
Leiðtogar Hamas-samtakanna hafa alltaf þvertekið fyrir að nota borgaralega innviði eins og sjúkrahús og skóla á Gasaströndinni.
Helmingur húsa orðið fyrir skemmdum
Fleiri en tólf þúsund manns hafa fallið í árásum Ísraela á Gasaströndinni, samkvæmt heilbrigðisráðuneyti Gasa, sem stýrt er af Hamas. Gasaströndin er eitthvað þéttbýlasta svæði heimsins en Ísraelar segjast reyna að draga úr mannfalli óbreyttra borgara og segja Hamas-liða skýla sér bakvið þá og vilja valda miklu mannfalli.
Blaðamenn Financial Times birtu í morgun grein um skemmdirnar sem stríðið hefur valdið á Gasaströndinni. Gífurlega margar byggingar hafa skemmst á svæðinu og þá sérstaklega á norðurhluta þess, þar sem landhernaður hefur átt sér stað í nokkrar vikur.
Sjá einnig: Segja íbúum á suðurhluta Gasa nú að flýja
Gervihnattamyndir voru notaðar til að greina skemmd hús en niðurstöðurnar gefa til kynna að nærri því helmingur húsa á norðanverðri Gasaströndinni hafi orðið fyrir skemmdum.
Israel s military has laid waste to much of northern Gaza, badly damaging more than half of the buildings and large swaths of entire neighbourhoods during its offensive, according to analysis of satellite data. https://t.co/LauZ3FYHuT pic.twitter.com/XvFCOJxFsQ
— Financial Times (@FT) November 20, 2023
Eins og áður segir hafa bardagar átt sér stað á þessu svæði. Hamas-samtökin birtu um helgina myndband sem sýnir nokkrar árásir vígamanna Hamas á ísraelska hermenn.
Í flestum tilfellum skjóta þeir sprengjum að ísraelskum skrið- og bryndrekum en í einu tilfelli hljóp vígamaður upp að skriðdreka og lagði sprengjuna á hann, undir skotturn skriðdrekans og hljóp á brott.