Sport

Ný CrossFit dóttir er fædd

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Nýjasta CrossFit dóttirin Bergrós Björnsdóttir hefur átt frábært ár þar sem hún var á palli á Reykjavíkurleikunun, á heimsleikunum og á Íslandsmeistaramótinu.
Nýjasta CrossFit dóttirin Bergrós Björnsdóttir hefur átt frábært ár þar sem hún var á palli á Reykjavíkurleikunun, á heimsleikunum og á Íslandsmeistaramótinu. Samsett/Instagram/@bergrosbjornsdottir

Íslensku dæturnar hafa vakið mikla athygli í CrossFit heiminum í gegnum tíðina og nú lítur út fyrir að ný dóttir sé að bætast í hópinn.

Það vissu flestir í íslenska CrossFit samfélaginu að Bergrós Björnsdóttir væri efnileg CrossFit kona.

Það hefur nú sýnt í keppni unglinga á heimsleikunum og þegar hún byrjaði árið á því að vinna Reykjavíkurleikana með Anníe Mist Þórisdóttir.

Bergrós sannaði sig sem alvöru keppenda á alþjóðlegu sviði þegar hún vann til bronsverðlauna í flokki sextán til sautján ára á heimsleikunum í CrossFit í haust.

Þar var Bergrós að keppa í flokki þar sem hún er enn á yngra ári. Hún fær því annað tækifæri í flokknum á næsta ári.

Bergrós skrifaði aftur á móti íslensku CrossFit söguna um síðustu helgi þegar hún varð Íslandsmeistari aðeins sextán ára gömul. Sú yngsta í sögunni til að gera það.

Bergrós hefur æft CrossFit frá því að hún var tólf ára og það er gaman að sjá hversu langt hún er komin á þessum fjórum árum.

CrossFit á Íslandi fagnar árangri Bergrósar í færslu hjá sér þar sem er farið yfir árangur stelpunnar. Þar kemur fram að hún sé þegar búin að tryggja sér þátttökurétt á Wodapalooza stórmótinu í Miami í janúar. Þetta er mjög stórt og flott mót.

Markmið hennar fyrir keppnisárið 2024 er samkvæmt CrossFit á Íslandi síðunni að komast inn á undanúrslit einstaklinga í undankeppni heimsleikanna og fá þar með að keppa með stóru stelpunum. Það ætti að gefa henni meiri keppnisreynslu.

Bergrós ætlar einnig að komast á CrossFit heimsleikana sem unglingur og þar eru markmiðin að sjálfsögðu sett á efsta pall eins og það er orðað á síðunni.

Færsla CrossFit á Íslandi endar svo á ensku. „We have a new daughter in town“ eða það er komin ný dóttir á svæðið.

Anníe Mist Þórisdóttir keppti fyrst Íslendinga á heimsleikunum í CrossFit árið 2009 en þá var Bergrós aðeins tveggja ára gömul.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×