Nýjasta þota Airbus í krefjandi prófunum í hvassviðri í Keflavík Kristján Már Unnarsson skrifar 10. október 2023 20:40 Airbus A321-XLR lendir í 40 hnúta hliðarvindi í dag. Við slíkar aðstæður láta flugmenn hjólið sem snýr upp í vindinn snerta brautina fyrst, eins og hér er gert. Einar Árnason Flugvélaframleiðandinn Airbus nýtti sér hvassviðrið á Íslandi í dag til flugprófana á nýjustu farþegaþotu sinni með því að lenda henni margsinnis í stífum hliðarvindi. Þetta er samskonar þota og ráðamenn Icelandair veðja á sem sína framtíðarvél.
Í fréttum Stöðvar 2 voru sýndar myndir frá lendingaræfingum A-321 XLR á Keflavíkurflugvelli í dag en hún er nýjasti meðlimur A-320 fjölskyldu Airbus. Ráðamenn Airbus stukku á tækifærið þegar þeir sáu veðurspána, flugu henni frá Toulouse í Frakklandi síðdegis í gær og hófu svo flugprófanir í morgun. Flugvélin hoppar og skoppar á brautinni eftir fyrstu snertingu. Flugmennirnir gáfu síðan allt í botn og rifu hana strax í loftið aftur.Einar Árnason Fyrir svona æfingar reyndust aðstæður sérlega hagstæðar. Sjá má hvernig flugmennirnir beita henni upp í vindinn í aðfluginu og rétta hana síðan af rétt fyrir snertingu þegar þeir lenda vélinni í 40 hnúta hliðarvindi, um 20 metrum á sekúndu. Flugprófanir XLR-vélarinnar hófust fyrir sextán mánuðum og er stefnt að því að hún fari í farþegaflug fyrir mitt næsta ár. En fyrst þarf hún að standast raunir eins og þessa. Í einni lendingunni sést hún hoppa og skoppa eftir lendingu á flugbrautinni, flugmennirnir gefa svo allt í botn og rífa hana aftur upp í loftið. Philippe Castaigns, tilraunaflugstjóri Airbus. Kútarnir fyrir aftan eru fylltir vökva sem dælt er á milli í þeim tilgangi að færa þyngdarpunkt vélarinnar til, eftir því sem þurfa þykir.Einar Árnason Flugstjórinn Philippe Castaigns sagði reyndar að það hefði verið fyrirfram ákveðið að taka þarna snertilendingu. Hann sagðist þó ekki mega veita okkur viðtal né sýna okkur vélina að innanverðu en lýsti ánægju með hversu vel hefði gengið að prófa flugvélina í Keflavík í dag. Fjórtán manna starfslið Airbus kom með henni til landsins. Icelandair-menn voru meðal þeirra sem fylgdust spenntir með lendingaræfingunum enda hafa þeir veðjað á þessa vél sem sína framtíðarþotu. Flugrekstrarstjórinn Haukur Reynisson nýtti tækifærið ásamt fleirum frá Icelandair til að fara um borð en félagið hefur gert samninga um kaup á allt að 25 svona vélum. Haukur Reynisson flugstjóri og flugrekstrarstjóri Icelandair.Einar Árnason „Mér líst alveg rosalega vel á gripinn. Þetta eru virkilega spennandi tímar framundan hjá fyrirtækinu að taka við Airbus eftir ár, fyrsta Airbusinum,“ segir Haukur. „Við fáum reyndar ekki XLR-vélina fyrr en 2029. Við þurfum að bíða aðeins lengur eftir henni. Enda, eins og þið sjáið, þeir eru ennþá að test-fljúga vélinni. Hún er ekki alveg tilbúin til afhendingar strax.“ Flugvélin tók átta lendingar í Keflavík í dag.Einar Árnason Haukur segir að það verði viðbrigði fyrir flugmenn Icelandair að fljúga Airbus en sjálfur er hann margreyndur Boeing-flugstjóri. „Ég var einmitt að reyna að fletta upp í flugstjóranum á vélinni hérna áðan og spurði hann út í hver væri helsti munurinn. Hann sagði jú að það er svona meiri tölvuvæðing í Airbusinum heldur en Boeingnum. En hann sagði samt sem áður: Þetta er flugvél, sko. Þannig að grunnhugmyndin er öll sú sama,“ segir flugrekstrarstjóri Icelandair. Hér má sjá frétt Stöðvar 2: Hér má sjá frétt um kaup Icelandair á A321-XLR síðastliðið sumar: Fyrir tíu árum brotlenti rússnesk Sukhoi-farþegaþota í flugprófunum á Keflavíkurflugvelli, sem sjá má í þessari frétt:
Airbus Keflavíkurflugvöllur Icelandair Fréttir af flugi Tengdar fréttir Segir nýju Airbus-þoturnar fullkomnar fyrir Icelandair Icelandair skrifaði í dag undir samning um kaup á allt að 25 Airbus-þotum. Jafnframt hefur félagið gert leigusamning um fjórar Airbus- þotur og verða þær fyrstu afhentar fyrir lok næsta árs. 6. júlí 2023 23:20 Nýja Airbus A321-þotan flugprófuð í fimbulkulda Hin nýja langdræga Airbus A321XLR-þota gengst um þessar mundir undir viðamiklar flugprófanir og var hún á dögunum reynd í fimbulkulda. Prófanirnar fóru fram á Iqaluit-flugvellinum við Frobisher-flóa í Norður-Kanada þar sem Airbus segir að frostið hafi farið niður í allt að -40 gráður. 20. apríl 2023 09:29 Agndofa yfir lendingu Icelandair-vélar Heldur athyglisvert myndband af lendingu Icelandair-vélar af gerðinni Boeing 767 birtist á YouTube í gær. Um er að ræða myndband af því þegar vél íslenska flugfélagsins lendir á Heathrow-flugvelli í London fimmtudaginn 29. nóvember við aðstæður sem verða að teljast gríðarlega erfiðar sökum vinds. 3. desember 2018 23:40 Airbus A-380 æfir erfiðar lendingar í Keflavík Komið var með hina glænýju risaþotu Airbus til Íslands í dag í annað sinn á skömmum tíma til að prófa hvernig þessi stærsta farþegaþota heims reynist í erfiðum hliðarvindslendingum. 30. janúar 2007 18:47 Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fleiri fréttir Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Sjá meira
Segir nýju Airbus-þoturnar fullkomnar fyrir Icelandair Icelandair skrifaði í dag undir samning um kaup á allt að 25 Airbus-þotum. Jafnframt hefur félagið gert leigusamning um fjórar Airbus- þotur og verða þær fyrstu afhentar fyrir lok næsta árs. 6. júlí 2023 23:20
Nýja Airbus A321-þotan flugprófuð í fimbulkulda Hin nýja langdræga Airbus A321XLR-þota gengst um þessar mundir undir viðamiklar flugprófanir og var hún á dögunum reynd í fimbulkulda. Prófanirnar fóru fram á Iqaluit-flugvellinum við Frobisher-flóa í Norður-Kanada þar sem Airbus segir að frostið hafi farið niður í allt að -40 gráður. 20. apríl 2023 09:29
Agndofa yfir lendingu Icelandair-vélar Heldur athyglisvert myndband af lendingu Icelandair-vélar af gerðinni Boeing 767 birtist á YouTube í gær. Um er að ræða myndband af því þegar vél íslenska flugfélagsins lendir á Heathrow-flugvelli í London fimmtudaginn 29. nóvember við aðstæður sem verða að teljast gríðarlega erfiðar sökum vinds. 3. desember 2018 23:40
Airbus A-380 æfir erfiðar lendingar í Keflavík Komið var með hina glænýju risaþotu Airbus til Íslands í dag í annað sinn á skömmum tíma til að prófa hvernig þessi stærsta farþegaþota heims reynist í erfiðum hliðarvindslendingum. 30. janúar 2007 18:47