Lífið

Drauma­brúð­kaup Ölmu á Spáni

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Alma giftist draumaprinsinum, Ed Wardweeks, á Spáni á dögunum.
Alma giftist draumaprinsinum, Ed Wardweeks, á Spáni á dögunum. Haffi Ben.

Tónlistarkonan Alma Guðmundsdóttir, betur þekkt sem Alma Goodman vestanhafs, giftist breska leikaranum Ed Weeks á Spáni liðna helgi. Vinkonur Ölmu úr Nylon voru á meðal veislugesta.

Brúðkaupið fór fram í smábænum Murcia á Suður-Spáni, þar sem foreldrar Ed búa og þau trúlofuðu sig í fyrra. 

Sólin skein sannarlega á brúðhjónin og veislugesti sem fögnuðu í fyrirpartýi á föstudagskvöldinu áður en brúðkaupið sjálft fór fram á laugardeginum. Klara Elías úr Nylon tók lagið fyrir turtildúfurnar og gleðin var sannarlega við völd.

Hjónin mánuði fyrir brúðkaupið.Alma

Alma kom fyrst fram á sjónarsviðið með Nylon fyrir tuttugu árum. Undanfarin ár hefur hún einbeitt sér að lagasmíð í Los Angeles í  Bandaríkjunum. Hún hefur meðal annars samið lag sem Katy Perry.

Alma og Ed, kynntust í Los Angeles fyrir nokkrum árum. Alma hefur verið búsett í Los Angeles alveg frá því að hún fluttist út árið 2010 með Klöru og Steinunni Camillu en á þeim tíma mynduðu þær stúlknabandið Charlies. En bandið kom nýlega saman á ný.

Dýrmætt að vinna saman

Weeks er þekkt­ur leik­ari í Hollywood og fór meðal annars með hlut­verk í gam­anþáttaseríunni The Min­dy Proj­ect. Í dag starfa hjónin saman og segir Alma tónlist ástríðu þeirra beggja í samtali við Vísi á dögunum.

„Við byrjuðum fyrst að leika okkur að því að syngja og semja saman og þá fattaði ég að hans helsta áhugamál hefur alltaf verið tónlist. Hann fór í leiklistina sem varð hans lifibrauð en ástríðan fyrir tónlistinni er alltaf til staðar. Okkur finnst ótrúlega gaman að vinna að einhverju saman og hægt og rólega færðist meiri alvara í það. Við erum dugleg að sameina okkar heima og vinnum saman að alls konar skemmtilegu, þar sem við sameinum til dæmis handritaskrif og tónlist,“ sagði Alma. Það væri stór plús að hjúin vinni vel saman.

„Það er svo verðmætt og það eru ekkert allir sem fýla að vinna með makanum sínum en það tengir okkur svo vel að vera með sameiginleg verkefni.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×