Innlent

Árekstur á Kringlumýrarbraut

Árni Sæberg skrifar
Einn sjúkrabíll er á vettvangi.
Einn sjúkrabíll er á vettvangi. Vísir/Vilhelm

Laust fyrir klukkan tíu varð árekstur tveggja bíla á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Háaleitisbrautar í Reykjavík.

Þetta staðfestir Bjarni Ingimarsson, varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Hann segir að einn sjúkrabíll hafi verið sendur á vettvang og að sjúkraflutingamenn hafi skoðað tvo sem hlutu minni háttar eymsli. Ekki hafi þurft að flytja neinn á sjúkrahús.

Þá segir hann að bílarnir tveir séu nokkuð skemmdir og hafi verið fluttir af vettvangi með krókbíl.

Fréttin hefur verið uppfærð.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×