Sport

Oddur markahæstur í stóru tapi Balingen

Siggeir Ævarsson skrifar
Oddur var markahæstur sinna manna í dag
Oddur var markahæstur sinna manna í dag Vísir/Getty

Oddur Grétarsson og félagar í Balingen máttu þola ellefu marka tap gegn Kiel í þýsku úrvalsdeildinni sem rúllaði af stað nú um helgina. 

Lokatölur leiksins urðu 25-36 Kiel í vil en Oddur var markahæstur Balingen manna með fjögur mörk. Oddur, sem er 33 ára, hefur verið í herbúðum Balingen síðan 2017 og er því að hefja sitt 7. tímabil með liðinu.

Tveir aðrir leikir fara fram í þýska boltanum í dag og hófust kl. 14:30. Melsungen tekur á móti Göppingen og þá taka lærisveinar Guðjóns Vals Sigurðssonar í Gummerbach á móti Lemgo.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×