KitchenAid með lyftiskál– fullkomin fyrir afkastamikla matgæðinga Heimilistæki 24. ágúst 2023 09:08 KitchenAid Bowl lift hrærivélin hnoðar allt að 3,9kg af deigi léttilega og er fullkomin fyrir stórtæka heimabakara. Allir ættu að kannast við KitchenAid hrærivélarnar en þær hafa verið tryggir aðstoðarkokkar í eldhúsum um allan heim í meira en öld. KitchenAid hafa lengi framleitt bæði hrærivélar fyrir heimaeldhús sem og atvinnueldhús en hafa nú sameinað krafta hvoru tveggja í eina vél.
Með lyftiskálinni nær mótorinn að setja allan sinn kraft í snúninginn á hræraranum og eykur stöðugleika vélarinnar. KitchenAid Bowl lift hrærivélin er fullkomin fyrir eldhús sem eru mitt á milli hefðbundinnar heimanotkunar og atvinnustarfssemi. Til dæmis fyrir stórtæka heimabakara, fjölmenn heimili, afkastamikla matgæðinga nú eða matarfrumkvöðla. Nú hefur öflugasta hrærivélin til þessa frá KitchenAid fengið yfirhalningu að innan sem utan og hefur nú helmingi meiri kraft en áður. Vélin stendur sig einstaklega við brauðbaksturinn en hún hnoðar allt að 3,9kg af deigi léttilega og ræður við erfiðari verkefni af öryggi. Ef hefðbundnar hrærivélar slitna fljótt hjá þér og fikra sig fram af eldhúsbekknum við brauðgerðina, þá gæti KitchenAid hrærivél með lyftiskál verið sú rétta fyrir þig. Með lyftiskálinni nær mótorinn að setja allan sinn kraft í snúninginn á hræraranum og eykur stöðugleika vélarinnar. Auk þess verndar hrærivélin sig með því að slökkva sjálfvirkt á sér við ofhitun. Því getur þú tekið brauðbaksturinn alla leið og skellt í nokkra hleifa á dag, nú eða haldið vikuleg kökuboð fyrir 40 manns án þess að hrærivélin kvarti undan álagi. Hrærivélinni fylgja 6,6L stálskál, hveitibraut, uppfærður hnoðari sem líkir eftir handhnoðun, þeytari, hrærari og spaði fyrir léttari blöndur með sílikon sköfu á báðum hliðum. Nýja hönnunin hefur einnig snúrugeymslu, hnúð úr steyptum málmi og 11 hraðastillingar þar á meðal hálfan hraða sem er tilvalinn þegar blanda þarf gætilega saman viðkvæmum hráefnum eins og eggjahvítum, rjóma eða öðrum blöndum sem þurfa að vera loftmiklar. Jafnframt fer snúningurinn varlega af stað upp í stilltan hraða til þess að koma í veg fyrir óþarfa sull og sóðaskap. Hveitisprengingar og súkkulaði listaverk á eldhúsveggjunum heyra því sögunni til! Hrærivélinni fylgja 6,6L stálskál, hveitibraut, uppfærður hnoðari sem líkir eftir handhnoðun, þeytari, hrærari og spaði fyrir léttari blöndur með sílikon sköfu á báðum hliðum. Allt sem þú þarft til að gerast fyrsta flokks matráður á eigin heimili. Vélin er glæsilega hönnuð og fáanleg í nokkrum litum með steyptum hraðastillihnúð og þrykktu bandi. Hún tekur sig vel út í eldhúsi þar sem hún er aðalstjarnan og fær að vera þér innan handar uppi á borðum. Þú finnur KitchenAid með lyftiskál á öllum helstu sölustöðum KitchenAid á Íslandi.
Hús og heimili Matur Mest lesið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Lífið Fundu ástina í stjórnarráðinu Lífið Íslenskt par í Köben stofnar nýjan leikjavef Lífið Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Lífið Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur Lífið „Ekki láta aldurinn eða stoltið stoppa þig“ Lífið Kynlíf á ekki að vera vont Lífið Fleiri fréttir Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira