Neytendasamtökin hættu viðskiptum sínum við Íslandsbanka í júní eftir að Fjármálaeftirlitið sektaði bankann yfir milljarð vegna lögbrota við útboð á hlut ríkisins í honum á síðasta ári. VR tilkynnti á föstudaginn að félagið hygðist hætta viðskiptum sínum við bankann vegna málsins.
Formaður VR sagði í hádegisfréttum Bylgjunnar að ekki væri nóg að bankastjóri, hluti af stjórn og nokkrir starfsmenn bankans hefðu látið af störfum vegna málsins. Það hefði þurft enn meiri endurnýjun.
Miðstjórn ASÍ kom saman eftir sumarfrí á miðvikudaginn í síðustu viku og ákvað þar að slíta viðskiptasambandi sínu við Íslandsbanka vegna þeirra lögbrota sem bankinn framdi við söluna á sjálfum sér á síðasta ári.
„Alvarleg lögbrot voru framin við sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Miðstjórn var einhuga um að slíta þessu viðskiptasambandi. Við teljum að þetta fyrirkomulag sölu á hlutum í Íslandsbanka hafi verið ásetningur en ekki mistök,“ segir Finnbjörn A. Hermannsson forseti ASÍ .
Finnbjörn hitti stjórnendur Íslandsbanka í dag og tilkynnti þeim formlega um ákvörðun samtakanna. Hann segir að fyrst og fremst sé verið að mótmæla háttsemi starfsmanna í sjálfu útboðinu á bankanum en ekki þeim viðbrögðum sem síðar komu.
„Það er mjög gott og virðingarvert af Íslandsbanka að taka þessi lögbrot mjög alvarlega en gjörningurinn er stendur og við erum að mótmæla honum með því að færa okkar viðskipti,“ segir hann.
Hann útilokar ekki að ASÍ hefji aftur viðskipti við Íslandsbanka en alls tóku samtökin um átta hundruð milljónir króna út úr Íslandsbanka í dag.
„Það má vel vera að við förum aftur til baka en þeir verða bara að sanna sig að þeir séu traustsins verðir,“ segir Finnbjörn.
Sárt að missa viðskiptavini
Jón Guðni Ómarsson bankastjóri Íslandsbanka vonast til að fá félagasamtökin þrjú aftur í viðskipti.
„Það er sárt að missa viðskiptavini. Við munum gera okkar besta til að endurvinna traust þeirra og fá þau aftur í viðskipti ef mögulegt er,“ segir Jón Guðni
Jón Guðni segist hafa lokið öllum breytingum á stjórn og starfsmannahaldi í kjölfar sekta Fjármálaeftirlitsins í sumar. Nú sé verið að fara yfir aðra ferla í bankanum.
„Við erum búin að gera miklar breytingar í stjórnendateyminu, meirihluti stjórnar hefur breyst og nýr stjórnarformaður hefur tekið við. Við erum núna að vinna í úrbótaáætlun samræmi við sátt við Seðlabankann,“ segir Jón Guðni.
Hann segir aðspurður að fáir hafi ákveðið að yfirgefa bankann eftir að Íslandsbankamálið svokallaða kom upp á síðasta ári.
„Það hafa ekki verið margir en við tökum það hins vegar ávallt alvarlega þegar fólk hættir hjá okkur eins og síðustu daga,“ segir hann að lokum.
Lítil verðlækkun
Vendingar síðustu daga virðast hafa hreyft lítillega við verði á hlutabréfum í Íslandsbanka sem lækkuðu um tvö prósent í dag. Stærstu eigendur bankans eru ríkissjóður með um fjörutíu og tveggja prósenta hlut og níu lífeyrissjóðir sem fara samanlagt með um þriðjung í bankanum.