Innlent

Apinn Bóbó heiðursgestur í Hveragerði um helgina

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Jóhanna Ýr, ásamt Einari Bárðarsyni, viðburðarstjóra Blómstrandi daga, ásamt apanum Bóbó og krökkunum frá vinstri Maríu Rós 8 ára, Katrínu Eddu 8 ára og Ómari Elí 8 ára.
Jóhanna Ýr, ásamt Einari Bárðarsyni, viðburðarstjóra Blómstrandi daga, ásamt apanum Bóbó og krökkunum frá vinstri Maríu Rós 8 ára, Katrínu Eddu 8 ára og Ómari Elí 8 ára. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Það var mikill fögnuður í Hveragerði í dag þegar apinn Bóbó kom með sendibíl úr Reykjavík til að taka þátt í bæjarhátíðinni “Blómastrandi dagar” um helgina. Hér erum við að tala um arftaka apa, sem margir muna eftir úr Eden.

Það var viðhöfn þegar Bóbó kom heim með sendibíl í hádeginu úr Reykjavík þar sem hann hefur átt heima frá því að hann flutti úr Hveragerði á sínum tíma. Allur ágóðinn sem fer í Bóbó mun renna til Einstakra barna.

„Já, hann er komin aftur en hann átti heima í Eden í gamla daga. Við erum rosalega glöð að sjá hann og hann er hjartanlega velkomin aftur í Hveragerði. Hann ætlar að sprella og hafa gaman í Blómaborg um helgina og taka brosandi á móti öllum þeim, sem vilja hitta hann,” segir Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir, formaður bæjarráðs Hveragerðisbæjar.

„Ég man eftir honum í Eden í gamla daga þegar hann var að spyrja mann hvort maður vildi heyra brandara og svona,” bætir Jóhanna Ýr við.

En hann talar bara ensku.

„Já, hann talar rosalega góða ensku en það er spurning hvort Lilja Alfreðs eða Bubbi vilja bara ekki taka hann í íslenskutíma. Ég er alveg viss um að þau séu til í það,” segir Jóhanna Ýr hlægjandi.

Einar og Jóhanna Ýr eiga von á því að mikið af gestum muni heilsa upp á Bóbó í Blómaborg um helgina.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Og Jóhanna segir að það verði mikið um að vera í Hveragerði alla helgina.

„Blómastrandi dagar í Hveragerði já, þetta verður frábær helgi þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi.”

Bóbó verður í Blómaborg um helgina.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Dagskrá helgarinnar í Hveragerði



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×