Innlent

Fyrsta skóflu­stungan að í­búðum VR í Úlfarsár­dal

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Ragnar Þór skellti sér í gröfuna til að taka væna skóflustungu.
Ragnar Þór skellti sér í gröfuna til að taka væna skóflustungu. Vísir/Helena Rós

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, og Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, tóku fyrstu skóflustunguna að nýjum fjölbýlishúsum VR á lóð félagsins í Úlfarsárdal í dag. Byggðar verða 36 íbúðir í tveimur fjölbýlishúsum sem verða leigðar til félagsfólks VR.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá VR en þar segir að með skóflustungunni hefjist langþráð uppbygging að leiguhúsnæði fyrir félagsfólk.

Reykjavíkurborg úthlutaði VR lóð við Silfratjörn í Úlfarsárdal árið 2021. Í byrjun þessa árs var skrifað undir samstarfssamning við Íslenska aðalverktaka um þróun svæðisins og í dag var skrifað undir framkvæmdasamning um verkið og fyrsta skóflustungan tekin.

Auk borgarstjóra og forseta VR tóku fulltrúar Íslenskra aðalverktaka og stjórnarfólk VR sér einnig skóflu í hönd og komu verkefninu formlega af stað.Vísir/Helena Rós

Verkið er unnið undir formerkjum Blævar íbúðafélags, systurfélags íbúðarfélagsins Bjargs, sem er samstarfsverkefni ASÍ og BSRB. Bjarg mun annast umsjón með framkvæmdum og rekstri Blævar. 

Byggðar verða 36 íbúðir, sem verða tveggja til fjögurra herbergja, í tveimur fjölbýlishúsum og verða þær leigðar til félagsfólks VR. Stefnt er að því að íbúðirnar verði afhentar um áramótin 2024-2025.

„Dagurinn í dag markar tímamót en mikil vinna hefur átt sér stað síðustu ár til að koma okkur á þennan stað,“ sagði Ragnar Þór við tilefnið. 

Ragnar sagði Blæ ekki óhagnaðardrifið félag en það legði höfuðáherslu á hagkvæma leigu, gæði og búsetuöryggi þeirra sem leigja. Hann sagðist vonast til þess að íslenskir lífeyrissjóðir og aðrir sambærilegir langtímafjárfestar kæmu að framtíðaruppbyggingu Blævar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×