Lífið

Moe's Bar falur fyrir 99 milljónir

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Reksturinn á Moe's Bar hefur verið til húsa í Jafnaseli 6 í fjórtán ár.
Reksturinn á Moe's Bar hefur verið til húsa í Jafnaseli 6 í fjórtán ár. Vísir/Vilhelm

Fasteignin Jafnasel 6 í Breiðholtinu, þar sem barinn Moe's Bar hefur verið rekinn undanfarin fjórtán ár, hefur verið sett á sölu fyrir 99 milljónir króna.

Fasteignin er sex herbergja atvinnuhúsnæði sem er 336,7 fermetrar að stærð á efri hæð Jafnasels 6. 

Fasteignamat fasteignarinnar fyrir árið 2024 er um 79 milljónir króna.

Við hliðina á Moe's er smurstöð og bílaverkstæði.Miklaborg

Moe's Bar hefur verið töluvert í fréttum frá október á síðasta ári þegar alvarleg líkamsárás átti sér stað barnum. 

Karlmanni á fimmtugsaldri var þá sparkað niður stiga með þeim afleiðingum að hann hlaut varanlegan heilaskaða. 

Þann 12. júní síðastliðinn var karlmaður á þrítugsaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir árásina.

Árið 2017 átti sér einnig stað alvarleg líkamsárás á staðnum þegar maður kastaði poka fullum af óopnuðum bjórdósum í annan mann, sló hann með járnröri og kastaði múrstein í höfuð hans.

Hægt að kaupa staðinn, reksturinn eða bæði

Mögulegum kaupendum standa ýmsir valkostir til boða þegar kemur að kaupum á fasteigninni. 

Kaupendur geta keypt fasteignina, fasteignina og reksturinn, reksturinn einn og sér eða leigt reksturinn með leigusamningi um fasteignina. Ásett verð miðast við sölu á fasteigninni og rekstri.

Barborðið er svo áþekkt barborðinu á Moe's í The Simpsons að maður getur auðveldlega séð Moe Szyslak fyrir sér bak við það.Miklaborg
Auk Pool-borðsins eru píluspjöld á staðnum, lítið svið og glæsilegir stuðningsfánar enskra fótboltaliða.

Þrír inngangar eru á eigninni, aðalinngangur er á gafli hússins. Við núverandi skipulag er rýmið tvískipti. 

Í stærri hluta hússins er innréttaður bar með eldhúsi, snyrtingum og innréttingum sem tilheyra rekstrinum.

Það er pool-borð á barnum rétt eins og á samnefndum bar í The Simpsons.Miklaborg

Í hinum hluta hússins er vinnusalur, geymslur og snyrting. Hurðargat er á milli rýma og því auðvelt að nýta í einu lagi. Barinn hefur vínveitingaleyfi til klukkan þrjú um helgar.

Fasteignafélagið Miklaborg sér um sölu fasteignarinnar en nánari upplýsingar má lesa um fasteignina á fasteignavef Vísis.

Með dugnaði er hægt að gera vinnusalinn að fínasta samkomusal.Miklaborg

Nafn barsins er auðvitað vísun í hinn fræga bar Moe's úr gamanþáttunum The Simpsons

Söguhetjan Homer Simpson er þar fastagestur ásamt Carl, Lenny og Barney Gumble. Þá gerir Bart, sonur Homers, reglulega símaat í Moe sem ærir krullhærðan barþjóninn.

Hér fyrir neðan má sjá klippu af því þegar Homer fékk (stutt) lífstíðarbann á barnum:






Fleiri fréttir

Sjá meira


×