Hæstaréttarlögmaður og saksóknari meðal átta í baráttu um dómarastarf Atli Ísleifsson skrifar 2. júní 2023 14:51 Guðrún Sesselja Arnardóttir er meðal umsækjenda. Hún er dóttir Arnar Clausen heitins, tugþrautarkappa og lögfræðings. Vísir/Vilhelm Lögmenn, lögfræðingar, aðstoðarmenn dómara og saksóknar bítast um tvö laus embætti héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjavíkur við Lækjartorg. Reynsluboltar og þekktir saksóknarar eru á meðal umsækjenda. Greint er frá umsækjendum á vef dómsmálaráðuneytisins.
Embættin voru auglýst í Lögbirtingablaðinu þann 12. maí. Annars vegar er um að ræða skipun í embætti dómara sem mun hafa fyrstu starfsstöð við Héraðsdóm Reykjavíkur frá og með 1. september næstkomandi. Hins vegar er um að ræða setningu í embætti dómara með fyrstu starfsstöð við Héraðsdóm Reykjavíkur meðan á leyfi skipaðs héraðsdómara stendur. Sett verður í embættið frá og með 1. september 2023 og miðað er við að setningin vari til 28. febrúar 2029. Meðal umsækjenda er Guðrún Sesselja Arnardóttir hæstaréttarlögmaður sem hefur gætt hagsmuna íslenska ríkisins í áberandi málum undanfarin ár auk þess að vera verjandi í áberandi sakamálum. Þá er Finnur Vilhjálmsson, saksóknari hjá héraðssaksóknara og fyrrverandi sjónvarpsmaður, á meðal umsækjenda. Finnur Vilhjálmsson hefur verið saksóknari í stórum efnahagsbrotamálum undanfarin ár.Vísir/Vilhelm Umsækjendur um embættin eru eftirtaldir: Finnur Vilhjálmsson saksóknari, Guðrún Sesselja Arnardóttir lögmaður, Hákon Þorsteinsson lögfræðingur, Logi Kjartansson lögfræðingur, Oddur Þorri Viðarsson lögfræðingur, Sólveig Ingadóttir aðstoðarmaður héraðsdómara, Stefanía G. Sæmundsdóttir saksóknari, Sigurður Jónsson lögmaður. Umsóknir verða afhentar dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara til meðferðar hið fyrsta.
Dómstólar Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Máttu tæma lónið Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira