KR og Víkingur víxla leikjum | Mætast í Víkinni á mánudag Valur Páll Eiríksson skrifar 18. apríl 2023 07:30 Meistaravellir eru ekki klárir. Vísir/Pawel KR og Víkingur Reykjavík hafa samið um að víxla heimaleikjum liðanna í deildarkeppni Bestu deildar karla í sumar. Meistaravellir í Vesturbæ er ekki klár til knattspyrnuiðkunar er liðin eigast við í næstu umferð.
KR á heimaleik í Mjólkurbikarnum við Þrótt Vogum annað kvöld en fékk undanþágu til að spila leikinn á gervigrasi sínu. Slíkt verður ekki við unað í Bestu deildinni og hafa þeir samið við Víkinga um að skipta á heimaleikjum. Liðin mætast því á KR-velli í 16. umferð, þann 23. júlí. Leiknum hefur einnig verið frestað um 75 mínútur og hefst því klukkan 19:15 á mánudagskvöldið, 24. apríl, á Víkingsvelli en hann átti að fara fram klukkan 18 í Frostaskjólinu. ÍBV samdi með samskonar hætti við KA fyrir leik liðanna í síðustu umferð sem fór fram á Akureyri en átti að vera í Vestmannaeyjum. Keflavík færði leik sinn við KR um helgina af grasvelli félagsins á gervigrasvöll við Nettóhöllina og þá vildu FH-ingar ekki spila á sínum grasvelli í Kaplakrika, fengu þó ekki skipti við Stjörnuna, og spiluðu því á Miðvelli, frjálsíþróttavelli félagsins. Grasvellir liðanna fjögurra koma allir illa undan vetri og óvíst hvenær þeir verða hæfir til knattspyrnuiðkunar sem sæmir efstu deild en fulltrúar þeirra flestra hafa kvaðst binda vonir við að það verði sem fyrst. KR er með fjögur stig eftir tvo fyrstu leikina, jafntefli við KA á Akureyri og 2-0 sigur á Keflavík um helgina. Víkingar eru einir á toppi deildarinar með fullt hús eftir 2-0 sigra á Stjörnunni og Fylki í upphafi móts.
Besta deild karla KR Víkingur Reykjavík Mest lesið Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Íslenski boltinn Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn McTominay í hjartaaðgerð Fótbolti KR - Víkingur | Stærsti leikur tímabilsins Íslenski boltinn Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Fleiri fréttir KR - Víkingur | Stærsti leikur tímabilsins Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Sjáðu Stjörnuna klára Blika Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby „Sköpuðum færi eftir færi allan leikinn“ „Stálheppnir að ná í þetta stig“ Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta „Veit að það á enginn séns í mig í þessari deild“ „Eiður hefur verið fyrirmyndin mín síðan ég var krakki“ Uppgjör: Fram - KA 2-2 | Fram náði í stig FH - Keflavík 2-1 | Fjarlægjast fallsætin Ásdís Karen að fara til AIK „Stoltur af orkustiginu miðað við aðstæður“ „Getum ekki farið með bænir og treyst á önnur úrslit“ Uppgjörið: Valur - FH 2-2 | Lillý Rut tryggði Val dramatískt stig og gerði FH skráveifu Sjáðu mörkin í rosalegum endurkomusigri Fram „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum „Óboðleg frammistaða í fyrri hálfleik“ „Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Sjá meira