Sigurvegarar Eddunnar 2023: Verbúðin sópaði til sín verðlaunum Máni Snær Þorláksson skrifar 19. mars 2023 22:14 Myndin var tekin þegar leikarar og aðstandendur Verbúðarinnar hittust og fögnuðu útgáfu síðasta þáttarins. Vísir/Hulda Margrét Edduverðlaunin, íslensku kvikmynda- og sjónvarpsverðlaunin, voru afhent í Háskólabíói í kvöld. Sjónvarpsþættirnir Verbúðin sópaði til sín verðlaunum en þættirnir voru einnig tilnefndir til flestra verðlauna í kvöld.
Edduverðlaunin eru veitt árlega af Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunni og voru þau fyrst veitt árið 1999. Gjaldgeng til verðlaunanna eru sjónvarps- og kvikmyndaverk sem sýnd voru opinberlega á tímabilinu 1. janúar til 31. desember 2022. Salka og Sóli skemmtu salnum Þau Salka Sól Eyfeld og Sólmundur Hólm voru kynnar Eddunnar. Þau skemmtu salnum til að mynda með rapplagi sem Salka flutti. Um var að ræða texta um íslenskar kvikmyndir sem Salka flutti undir laginu Players eftir Coi Leray. Þá hló salurinn líka þegar Sólmundur, eða Sóli eins og hann er gjarnan kallaður, kom upp á svið eftir að Viktoría Hermannsdóttir fékk Edduverðlaunin fyrir sjónvarpsmanneskju ársins. „Djöfull er þetta heit gella maður, sem var að vinna hérna, vá. Ég ætla að redda mér númerinu hennar,“ sagði Sólmundur en þau Viktoría eru hjón. „Ef þið haldið svona áfram þá get ég ekki hafið ræðuna!“ Heiðursverðlaun Eddunnar voru veitt Ágústi Guðmundssyni fyrir sitt mikilvæga og einstaka framlag til íslenskrar kvikmyndalistar. Salurinn fagnaði ákaft þegar tilkynnt var um að hann fengi verðlaunin. Ágúst fékk svo nóg af fagnaðarlátunum: „Ef þið haldið svona áfram þá get ég ekki hafið ræðuna!“ Fagnaðarlætin héldu svo áfram þegar Ágúst fór yfir breytingarnar sem hafa orðið síðan ferill hans hófst: „Það fyrsta: Samkynhneigðir hafa verið teknir í sátt og nú finnst okkur furðulegt að það skyldi ekki hafa gerst löngu fyrr. Númer tvö: Konur hafa bylt þjóðfélaginu en söngva- og gleðimyndin Með allt á hreinu sá það nú reyndar fyrir. Þriðja byltingin er svo menningarbylting því hvaða listgrein hefur blómstrað betur en einmitt kvikmyndagerðin á þessu tímabili.“ Laufey einnig heiðruð Laufey Guðjónsdóttir, fyrrverandi forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Ísland, var þá heiðruð á hátíðinni fyrir framlag sitt til geirans. Laufey sagði í þakkarræðu sinni að hún hefði nú ekki gert neitt nema mæta í vinnuna. Þá benti hún á hve mikil vinna felst í íslenskri kvikmyndagerð. „Það er bæði sköpunarkrafturinn sem þarf, það er fagmennskan, ótrúleg þrautseigja og þor. Síðan til þess að fíra upp í þessu öllu saman er mjög mikilvægt að treysta á stuðning stjórnvalda sem hafa svo sannarlega staðið við bak greinarinnar.“ Verbúðin með flest verðlaun Það er óhætt að segja að þau sem komu að Verbúðinni voru sigurvegar kvöldsins. Verbúðin var með alls sextán tilnefningar og vann til níu verðlauna. Verbúðin vann til að mynda verðlaunin fyrir handrit ársins en þættirnir voru upphaflega ekki tilnefndir í þeim flokki. Eftir að ljóst varð að um mistök hafði verið að ræða var sjónvarpsþáttunum bætt við í flokkinn. Hér fyrir neðan má sjá alla sigurvegarana og tilnefningarnar í öllum flokkunum. Sigurvegararnir eru feitletraðir. Kvikmynd ársins: Svar við bréfi Helgu Sumarljós og svo kemur nóttin Against the Ice Berdreymi Volaða land Heimildamynd ársins: Velkominn Árni Út úr myrkrinu Sundlaugasögur Leikið sjónvarpsefni ársins: Trom Svörtu sandar Randalín og Mundi: Dagar í desember Brúðkaupið mitt Verbúðin Leikstjóri ársins: Heimir Bjarnason - Þrot Ása Helga Hjörleifsdóttir - Svar við bréfi Helgu Guðmundur Arnar Guðmundsson - Berdreymi Hlynur Pálmason - Volaða land Björn Hlynur Haraldsson, Gísli Örn Garðarsson & María Reyndal - Verbúðin Leikari ársins í aðalhlutverki: Þorvaldur Davíð Kristjánsson - Svar við bréfi Helgu Birgir Dagur Bjarkason - Berdreymi Viktor Benoný Benediktsson - Berdreymi Ingvar E. Sigurðsson - Volaða land Gísli Örn Garðarsson - Verbúðin Leikkona ársins í aðalhlutverki: Hera Hilmarsdóttir - Svar við bréfi Helgu Sara Dögg Ásgeirsdóttir - Sumarljós og svo kemur nóttin Aldís Amah Hamilton - Svörtu sandar Kría Burgess - Randalín og Mundi: Dagar í desember Nína Dögg Filippusdóttir - Verbúðin Leikari ársins í aukahlutverki: Björn Thors - Svar við bréfi Helgu Blær Hinriksson - Berdreymi Hilmar Guðjónsson - Volaða land Guðjón Davíð Karlsson - Verbúðin Ingvar E. Sigurðsson - Verbúðin Leikkona ársins í aukahlutverki: Aníta Briem - Svar við bréfi Helgu Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir - Svörtu sandar Katla Njálsdóttir - Vitjanir Kristín Þóra Haraldsdóttir - Verbúðin Unnur Ösp Stefánsdóttir - Verbúðin Búningar ársins: Berdreymi - Helga Rós Hannam Svar við bréfi Helgu - Eugen Tamberg Verbúðin - Margrét Einarsdóttir og Rebekka Jónsdóttir Against the ice - Margrét Einarsdóttir Volaða land - Nina Grønlund Gervi ársins: Svar við bréfi Helgu - Evalotte Oosterop Berdreymi - Kristín Júlla Kristjánsdóttir Volaða land - Katrine Tersgov Abbababb! - Hafdís Kristín Lárusdóttir Verbúðin - Kristín Júlla Kristjánsdóttir Leikmynd ársins: Sumarljós og svo kemur nóttin - Heimir Sverrisson Abbababb! - Systa Björnsdóttir Svörtu sandar - Gunnar Pálsson & Marta Luiza Macuga Against the ice - Atli Geir Grétarsson Verbúðin - Atli Geir Grétarsson & Ólafur Jónasson Brellur ársins: Magic Lab, Haymaker, Split - Berdreymi Rob Tasker - Abbababb! Sigurgeir Arinbjarnarson - Svörtu sandar Guðjón Jónsson (VFX Supervisor) Monopix / ShortCut / MPC / Union VFX/ Filmgate - Against the ice Davíð Jón Ögmundsson - Verbúðin Handrit ársins: Heimir Bjarnason - Þrot Bergsveinn Birgisson, Ottó G. Borg og Ása Helga Hjörleifsdóttir- Svar við Bréfi Helgu Guðmundur Arnar Guðmundsson - Berdreymi Hlynur Pálmason - Volaða land Vala Þórsdóttir, Kolbrún Anna Björnsdóttir & Eva Sigurðardóttir - Vitjanir Björn Hlynur Haraldsson, Gísli Örn Garðarsson og Mikael Torfason - Verbúðin Frétta- og viðtalsefni ársins: Vigdís - Forseti á friðarstóli - Stöð 2 Kompás - Stöð 2 Krakkafréttir - KrakkaRÚV Kveikur - Fréttastofa RÚV Um land allt - Stöð 2 Skemmtiefni ársins: Stóra sviðið Krakkakviss Krakkaskaupið Áramótaskaup 2022 Hraðfréttir 10 ára Íþróttaefni ársins: Jón Arnór - Stöð 2 Sport & Stöð 2 Úrslitakeppni í körfubolta/körfuboltakvöld - Stöð 2 Sport Förum á EM - Pera fyrir RÚV HM stofan/HM kvöld - RÚV Íþróttir Alex from Iceland - Skot Productions Mannlífsefni ársins: Æði 4 - 101 Productions Leitin að upprunanum - Stöð 2 Börnin okkar - Task 4 Media fyrir RÚV Náttúran mín - RÚV Hvunndagshetjur - Skot Productions Menningarefni ársins: Veislan Morð í norðri Skapalón Evrópsku kvikmyndaverðlaunin Klassíkin okkar Kvikmyndataka ársins: Jasper Wolf - Svar við bréfi Helgu Sturla Brandth Grøvlen - Berdreymi Maria von Hausswolff - Volaða land Jóhann Máni Jóhannsson - Svörtu sandar Hrafn Garðarsson - Verbúðin Tónlist ársins: Páll Ragnar Pálsson og Eðvarð Egilsson - Skjálfti Gunnar Týnes - Sumarljós og svo kemur nóttin Alex Zheng Hungtai - Volaða land Ragnar Ólafsson - Vitjanir Herdís Stefánsdóttir & Kjartan Dagur Holm - Verbúðin Klipping ársins: Antti Reikko - Svar við bréfi Helgu Andri Steinn Guðjónsson & Anders Skov - Berdreymi Julius Krebs Damsbo - Volaða land Úlfur Teitur Traustason - Svörtu sandar Kristján Loðmfjörð - Verbúðin Hljóð ársins: Gunnar Árnason - Skjálfti Tuomas Klaavo - Svar við bréfi Helgu Yanna Soentjens, Matthias Hillegeer - Sumarljós og svo kemur nóttin Björn Viktorsson & Kristian Eidnes Andersen - Volaða land Kjartan Kjartansson - Against the ice Barna- og unglingaefni ársins: Abbababb! Krakkaskaupið Miðjan Ævntýri Tulipop Randalín og Mundi: Dagar í desember Upptöku- eða útsendingarstjóri ársins: Sturla Skúlason - Sögur verðlaunahátíð Björgvin Harðarson - Blindur bakstur Þór Freysson - Mugison og Cauda Collective - Haglél í 10 ár Salóme Þorkelsdóttir - Söngvakeppnin 2022 Þór Freysson - Sigurrós í Höllinni Stuttmynd ársins: Mitt Draumaland Hávængja (Chrysalis) Kílómetrar Hreiður HEX Sjónvarpsmanneskja ársins: Chanel Björk Sturludóttir Kristjana Arnarsdóttir Kristján Már Unnarsson Steinþór Hróar Steinþórsson Viktoría Hermannsdóttir
Edduverðlaunin Bíó og sjónvarp Kvikmyndagerð á Íslandi Mest lesið Er Ormstunga djarfasta sýning ársins? Gagnrýni Klæðist því sem eykur sjálfstraustið Tíska og hönnun Kynlífssena sautján ára stúlku hafi splundrað samstarfi bræðranna Bíó og sjónvarp Steinunn Ólína í „friðarinnlögn“ með kæró Lífið Bríet og Pálmi takast á fyrir dómstólum Lífið Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Lífið samstarf Tíminn og vatnið frumsýnd á Sundance: „Viska afa í Teigó sigraði hjörtu þeirra“ Bíó og sjónvarp Kristrún og Isabelle Huppert flottar á opnun Menning Líf og fjör í loðnu málverkunum Menning Eins og gangandi beinagrindur með húðflygsur á sér Lífið Fleiri fréttir Elskaði Elvis áður en hann byrjaði að labba Palli og Edgar fagna sambandsafmæli Steinunn Ólína í „friðarinnlögn“ með kæró Kepptu í því að kveikja eld og klifra upp klifurturn Ráðherrann brunar af þingfundi til að horfa á leikinn Á móti vasapeningum og gæfi barni aldrei debetkort Sweeney í vanda fyrir að klæða Hollywood-skiltið í brjóstahaldara Í öndunarvél eftir blóðeitrun Eins og gangandi beinagrindur með húðflygsur á sér Draugur Lilju svífur yfir vötnum Þórdís og Júlí eiga von á öðru barni Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“ Forritara stærðfræðileiks tekið eins og rokkstjörnu „Amma sagði alltaf að við værum líkir“ Kristrún, Sólrún Diego og Jón Jónsson sáu Galdrakarlinn í Oz Fréttatían: Pólitíkin, flug og söngleikir Sveppi þvoði hnausþykkt hár Eiðs Smára Féll eftir tuttugu ára edrúmennsku Ragga Theó fann ástina hjá Davíð Þór Ólst upp með lítið á milli handanna og fór ung að vinna í fiski Stjörnulífið: Fáklædd í fimbulkulda Bríet og Pálmi takast á fyrir dómstólum „Er eðlilegt að kynlíf taki af mér stjórn og að ég sé upptekinn af kynlífi flesta daga?“ Gisti þar sem Verdi andaðist fyrir hreina tilviljun Dagurinn þegar Bessastaðatjörn varð vettvangur harmleiks Gæti vaknað einn daginn og ætlað á þing Kannast ekki við að vera genginn til liðs við Samfylkinguna „Sílíkon er eitthvað sem mun fara með mér í gröfina“ Aron Can og Erna selja en elska eldhúsbúrið Brúðurin hljóp grátandi út áður en Victoria dansaði við Brooklyn Sjá meira
Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“