Innlent

Verkbannið löglega boðað

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Nú er ljóst að verkbann Samtaka atvinnulífsins var löglega boðað.
Nú er ljóst að verkbann Samtaka atvinnulífsins var löglega boðað. arnar halldórsson

Verkbann Samtaka atvinnulífsins var löglega boðað. Þetta staðfestir Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins en dómur í málinu var kveðinn upp klukkan þrjú.

ASÍ ákvað að stefna SA fyrir Félagsdómi til þess að fá boðað verkbann gegn félagsfólki Eflingar ógilt. Í tilkynningu sem sambandið gaf frá sér þann 25. febrúar kom fram að það telji stjórn SA óheimilt að taka ákvörðun um verkbann auk þess sem það telur að ójafnt atkvæðavægi félagsmanna SA í kosningunni um verkbannið hafi ekki átt sér lagastoð.

Aldrei varð þó af verkbanni þar sem banninu og verkföllum var frestað þar til niðurstaða atkvæðagreiðslu um nýja miðlunartillögu ríkissáttasemjara liggur fyrir. 

Ragnar Árnason, forstöðumaður vinnumarkssviðs Samtaka atvinnulífsins.Vísir/Sigurjón

Ragnar Árnason, forstöðumaður vinnumarkaðssviðs Samtaka atvinnulífsins, segir í samtali við fréttastofu að dómurinn kveði annars vegar á um að verkbannið sem Samtök atvinnulífsins boðuðu hafi verið boðað með lögmætum hætti auk þess sem dómurinn skeri úr um að samtökunum sé yfirleitt heimilt að boða til verkbanna.

„Framtíðarheimildin er ótvíræð,“ segir Ragnar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×