Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæruna í málinu en karlmaðurinn hefur sætt gæsluvarðhaldi síðan hann var handtekinn þann 29. nóvember.
Fram kemur í ákærunni að öxin hafi verið með tólf sentímetra löngu blaði. Hann hafi slegið konuna í höfuð, hent henni í jörðina og í framhaldinu átt í átökum við hana uns hún komst undan og leitaði skjóls inni í skólanum.
Karlmaðurinn ógnaði þannig lífi, heilsu og velferð hennar á alvarlegan og sérstaklega sársaukafullan og meiðandi hátt, að því er segir í ákæru. Konan hlaut opið sár á höfði, brot á höfuðkúpu og andlitsbeinum, sár og mat á upphandlegg auk fleiri áverka.
Þá er honum gefið að sök að hafa unnið skemmdir á bíl konunnar með öxinni. Skemmdirnar urðu það miklar að bíllinn eyðilagðist að því er fram kemur í ákærunni.
Þess er krafist að karlmaðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Til vara er þess krafist að hann sæti öryggisgæslu á viðeigandi stofnun. Þá er gerð krafa um 4,5 milljónir króna í miska- og skaðabætur fyrir konuna. Því til viðbótar tvær milljónir króna vegna tjóns á bílnum.