Innlent

Hætta á að skriðuspýjur fari á vegi

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Stór skriða féll á Grenivíkurveg í nóvember í fyrra. Samkvæmt Veðurstofunni er ekki talin hætta á að skriður falli í byggð í leysingunum nú. Þær gætu helst farið á vegi.
Stór skriða féll á Grenivíkurveg í nóvember í fyrra. Samkvæmt Veðurstofunni er ekki talin hætta á að skriður falli í byggð í leysingunum nú. Þær gætu helst farið á vegi. vísir/Tryggi

Veðurstofan varar við skriðuhættu á sunnan- og vestanverðu landinu samhliða mikilli úrkomu og leysingum. Skriðusérfræðingur hjá Veðurstofunni telur ekki hættu á að skriður falli í byggð en að einhverjar spýjur gætu farið á vegi.

Gular viðvaranir eru víða í gildi vegna hvassviðris og mikil rigning hefur verið á sunnan- og vestanverðu landinu síðan í gærkvöld.

Sjá má myndir ljósmyndarans RAX sem teknar voru á Snæfellsnesi í morgun í spilaranum að neðan. 

Veðurstofan hefur varað við aukinni hættu á krapaflóðum sem Esther Hlíðar Jensen, skriðusérfræðingur hjá Veðurstofunni, segir þó ekki virðast miklar líkur á.

„Það hefur mjög mikið tekið upp af snjó þar sem búið að rigna alveg frá miðnætti þannig að það eru minni líkur á krapaflóðum núna, en það er þó enn möguleiki að það komi einhver krapi,“ segir Esther.

„Síðan er möguleiki að þar sem jörðin hefur þiðnað komi einhverjar skriðuspýjur eða grjóthrun.“

Það gæti þá helst verið á sunnanverðum Vestfjörðum eða Vesturlandi en einnig á Suðurlandi og Suðausturlandi, þar sem mesta úrkoman hefur verið.

Er talin einhver hætta á þessu í byggð? 

„Nei, engin hætta í byggð og í rauninni er þetta meira vatnsveður og það geta alltaf fylgt því einhverjar hreyfingar og þá aðallega á vegum.“

Hún bendir fólki á að fylgjast með færð á vegum hjá Vegagerðinni en segir að draga eigi úr hættunni síðar í dag.

„Það á að draga úr úrkominni seinnipartinn og síðan á að fara kólna og þá teljum við á að það séu miklu minni líkur á að eitthvað gerist,“ segir Esther Hlíðar Jensen, skriðusérfræðingur hjá Veðurstofunni.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×