Innlent

Kvöldfréttir Stöðvar 2

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Erla Björg Gunnarsdóttir les kvöldfréttir á Stöð 2.
Erla Björg Gunnarsdóttir les kvöldfréttir á Stöð 2. Stöð 2

Sonur konu sem lést í umsjá læknis, sem sætir lögreglurannsókn vegna meintra brota í starfi, blöskrar að læknirinn fái að starfa áfram á Landspítalanum. Hann segir móður sína hreinlega hafa verið tekna af lífi á sjúkrahúsinu og vísar skýringum læknisins, sem tjáði sig í fyrsta sinn um málið í dag, á bug.

Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 og ræðum við formann Læknafélags Íslands um mál á hendur heilbrigðisstarfsmönnum sem eru til meðferðar hjá lögreglu.

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun vegna asahláku og flóðahættu á morgun. Starfsmaður borgarinnar segir óvíst hvort holræsakerfið ráði við hlákuna og hvetur fólk til að hreinsa frá niðurföllum í kvöld. Nokkur viðbúnaður er á Suðurlandi vegna flóðahættu en Magnús Hlynur fylgdist með í dag þegar starfsmenn Vegagerðarinnar rufu Skeiða- og Hrunamannaveg til að vernda nýja brú sem er í smíðum.

Þá heyrum við í formanni Samfylkingar um ákvörðun formanns systurflokksins í Nýja-Sjálandi um að segja af sér vegna kulnunar, skoðum framtíðina í umhverfisvænu farþegaflugi og hittum HM-manninn svokallaða sem er óhræddur við að sýna tilfinningar.

Þetta og margt fleira á samtengdum rásum Bylgjunnar og Stöðvar 2 klukkan 18:30.

Hlusta má á kvöldfréttirnar í beinni í spilaranum hér að ofan. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×