Eng­lands­meistararnir slógu bikar­meistarana úr leik

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Erling Barut Haaland hélt uppteknum hætti og skoraði eitt stykki mark í kvöld.
Erling Barut Haaland hélt uppteknum hætti og skoraði eitt stykki mark í kvöld. Matt McNulty - Manchester City/Manchester City FC via Getty Images

Englandsmeistarar Manchester City eru á leið í átta liða úrslit enska deildarbikarsins á kostnað ríkjandi bikarmeistara Liverpool efti 3-2 sigur í frábærum leik í kvöld.

Bæði lið stilltu upp nokkuð sterkum byrjunarliðum í kvöld, enda alltaf mikilvægir leikir þegar þessi tvö lið mætast.

Það tók Englandsmeistarana ekki nema tæpar tíu mínútur að brjóta ísinn og þar var á ferðinni norska markamaskínan Erling Braut Haaland eftir stoðsendingu frá Kevin de Bruyne. Fabio Carvalho jafnaði þó metin í 1-1 fyrir Liverpool tíu mínútum síðar og þannig stóðu leikar þegar flautað var til hálfleiks.

Síðari hálfleikur bauð upp á mikla skemmtun á fyrstu mínútunum. Riyad Mahrez kom heimamönnum yfir á nýjan leik strax á 47. mínútu áður en Mohamed Salah jafnaði metin fyrir Liverpool aðeins mínútu síðar.

Það var hins vegar miðvörðurinn Nathan Aké sem skoraði markið sem skildi liðin að þegar hann kom boltanum í netið eftir fyrirgjöf frá Kevin de Bruyne á 58. mínútu.

Niðurstaðan því 3-2 sigur Manchester City og Englandsmeistararnir eru á leið í átta liða úrslit enska deildarbikarsins, en ríkjandi meistarar Liverpool sitja eftir með sárt ennið.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira