Viðskipti erlent

„Gamal­dags fjár­dráttur“ hjá FTX

Kjartan Kjartansson skrifar
Frá kynningu alríkissaksóknara á ákærum á hendur Sam Bankman-Fried í New York í gær.
Frá kynningu alríkissaksóknara á ákærum á hendur Sam Bankman-Fried í New York í gær. Vísir/Getty

Skiptastjóri fallna rafmyntafyrirtækisins FTX segir að það sem átti sér stað innan þess hafi ekki verið neitt flóknara en „gamaldags fjárdráttur“. Sam Bankman-Fried, stofnandi FTX, er ákærður fyrir fjársvik og peningaþvætti.

FTX var þriðja stærsta rafmyntakauphöll í heimi og var metið á um þrjátíu milljarða dollara þegar mest lét. Fyrirtækið var tekið til gjaldþrotameðferðar í kjölfar lausafjárþurrðar vegna áhlaups viðskiptavina sem sáu fréttir um vafasamt samkrull kauphallarinnar og vogunarsjóðs Bankman-Frieds. Talið er að fyrirtækið skuldi fimmtíu stærstu kröfuhöfum sínum meira en þrjá milljarða dollara, jafnvirði meira en 426 milljarða íslenskra króna.

Bankman-Fried var handtekinn á Bahamaeyjum, þar sem FTX, hafði höfuðstöðvar að beiðni bandarískra yfirvalda á mánudagskvöld. Hann er ákærður fyrir fjársvik, peningaþvætti og brot á lögum um framlög til stjórnmálaflokka. Þá kærði bandaríska verðbréfaeftirlitið hann fyrir að nota fé fjárfesta til að fjármagna eigin áhættufjárfestingar, kaup á lúxusfasteignum og framlög til stjórnmálaafla.

Fallni rafmyntakóngurinn var leiddur fyrir dómara í Nassá á Bahamaeyjum í gær. Honum var neitað um lausn gegn tryggingu en saksóknarar sögðu að hætta væri á að hann reyndi að flýja. Þar sagðist hann ætli að mótmæla því að verða framseldur til Bandaríkjanna, að sögn Reuters-fréttastofunnar.

Í ákærunni gegn Bankman-Fried er hann sakaður um að hafa lagt á ráðin um að svíkja fé út úr viðskiptavinum og fjárfestum til þess að auðgast sjálfur allt frá því að FTX var stofnað árið 2019. Það hafi hann gert með því að beina fé viðskiptavina ólöglega inn í vogunarsjóð sinn Alameda Research.

Damian Williams, alríkissaksóknari í New York, sagði svikin „ein þau stærstu í sögu Bandaríkjanna“.

John Ray þriðji hefur marga fjöruna sopið enda tók hann við þrotabúi Enron sem fór á hausinn með látum. Hann segir óstjórnina innan FTX þá verstu sem hann hefur séð.AP/Manuel Balce Ceneta

„Ekki flókið að neinu leyti“

John Ray þriðji, skiptastjóri FTX, kom fyrir fjármálaþjónustunefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings í gær en Bankman-Fried átti einnig að vera gestur á fundinum. Hann hefur ítrekað lýst óráðsíunni innan FTX sem þeirri verstu sem hann hafi orðið vitni að á ferlinu, jafnvel þó að hann hafi séð um að greiða úr flækjunni eftir gjaldþrot orkurisans Enron á fyrsta áratug aldarinnar.

Í framburði Ray kom meðal annars fram að ekkert innra eftirlit hafi verið til staðar hjá FTX og engir endurskoðendur. Engin framkvæmdastjórn var til staðar og ekkert kerfi var til staðar sem kom í veg fyrir að Bankman-Fried gæti fært fé út úr FTX og inn í Alameda Research, rafmyntavogunarsjóð sinn.

Hann sagðist hafa fundið gögn um lán þar sem Bankman-Fried var bæði skráður útgefandi og móttakandi. Samþykki fyrir útgjöldum hafi verið veitt með tjámynd (e. emoji). Bókhaldskerfið margmilljarða dollara fyrirtækisins var staðlað forrit sem lítil og meðalstór fyrirtæki nota gjarnan, að sögn AP-fréttastofunnar.

Ray áætlaði að um átta milljarðar dollara af innistæðum viðskiptavina fyndust ekki.

„Þetta er bara gamaldags fjárdráttur, að taka peninga frá öðrum og nota þá í eigin þágu. Þetta er ekki flókið að neinu leyti,“ sagði Ray við þingmennina.

Skráði kosningaframlög í nafni annarra

Svo virðist sem að Bankman-Fried og yfirvöld á Bahamaeyjum hafi gert með sér einhvers konar samkomulag rétt áður en fyrirtækið fór í þrot. Þau leyfðu um 1.500 óþekktum fjárfestum á Bahamaeyjum að taka út um hundrað milljónir dollara, jafnvirði meira en fjórtán milljarða króna, af reikningum sínum hjá FTX á meðan innistæður viðskiptavina annars staðar voru frystar, að sögn Ray.

Bankman-Fried er einnig ákærður fyrir brot á lögum um framlög til stjórnmálaframboða. Hann var næstumsvifamesti bakhjarl Demókrataflokksins fyrir þingkosningarnar í síðasta mánuði. Sjálfur fullyrðir hann að hann hafi gefið repúblikönum jafnháar fjárhæðir en í gegnum svokallaðar pólitískar aðgerðanefndir sem þurfa ekki að veita upplýsingar um hverjir styrkja þær.

Saksóknarar saka hann um að hafa látið Alameda Research láta út fyrir framlögunum en skrá þau ranglega í nafni annarra einstaklinga.


Tengdar fréttir

Sakaður um að fé­fletta fjárfesta FTX

Bandaríska verðbréfaeftirlitið sakar Sam Bankman-Fried, stofnanda FTX, um að hafa féflett fjárfesta rafmyntafyrirtækisins um árabil. Fénu hafi hann beint í eigin vogunarsjóðs sem hann notaði í áhættufjárfestingar, kaup á lúxusfasteignum og styrki til stjórnmálaflokka.

Stofnandi FTX hand­tekinn á Bahama­eyjum

Lögreglumenn á Bahamaeyjum handtóku Sam Bankman-Fried, stofnanda fallna rafmyntafyrirtækisins FTX, eftir að bandarískir saksóknarar höfðuðu sakamál gegn honum. Bankman-Fried er sagður grunaður um fjársvik og peningaþvætti.

Raf­mynta­keisarinn sem reyndist nakinn

Stofnandi rafmyntakauphallarinnar FTX var hylltur sem einhvers konar kennifaðir rafmyntarbransans og viðraði sig upp við stórstjörnur og stjórnmálamenn. Allt að milljón fjárfesta og viðskiptavina sitja nú uppi með milljarða dollara tap eftir skyndilegt hrun fyrirtækisins.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×