Erlent

Banda­ríkja­þing nærri því að lög­festa hjóna­bönd sam­kyn­hneigðra

Kjartan Kjartansson skrifar
Fáni hinsegin fólks við Hæstarétt Bandaríkjanna. Hjónabönd samkynhneigðra voru mikið hitamál vestanhafs þar til Hæstiréttur ákvað að rétturinn til þess væri bundinn í stjórnarskrá árið 2015. Síðan þá hefur stuðningur við þann rétt vaxið á meðal Bandaríkjamanna, einnig hjá repúblikönum sem voru alfarið á móti.
Fáni hinsegin fólks við Hæstarétt Bandaríkjanna. Hjónabönd samkynhneigðra voru mikið hitamál vestanhafs þar til Hæstiréttur ákvað að rétturinn til þess væri bundinn í stjórnarskrá árið 2015. Síðan þá hefur stuðningur við þann rétt vaxið á meðal Bandaríkjamanna, einnig hjá repúblikönum sem voru alfarið á móti. Vísir/Getty

Frumvarp sem festi rétt samkynhneigðra og para af ólíkum kynþáttum til hjónabands í lög virðist nú eiga greiða leið á Bandaríkjaþingi eftir að hópur repúblikana greiddi atkvæði með því í öldungadeildinni í kvöld. Demókratar stefna á að samþykkja lögin áður en þeir missa meirihluta sinn á þingi.

Atkvæðagreiðslan í öldungadeildinni í kvöld snerist um hvort að umræðu um frumvarpið skyldi haldið áfram. Þingsköp kveða á um að sextíu atkvæði af hundrað þurfi til þess að halda umræðu áfram ef einhver þingmaður hyggst beita málþófi til þess að stöðva framgang þess.

Tólf þingmenn Repúblikanaflokksins, þar á meðal Mitt Romney, fyrrverandi forsetaframbjóðandi hans, greiddu atkvæði með því að halda umræðunni áfram í kvöld. AP-fréttastofan segir að lokaatkvæðagreiðslan um frumvarpið gæti því farið fram strax í þessari viku eða síðar í þessum mánuði. Niðurstaðan í kvöld þýðir að einfaldur meirihluti þingmanna nægir til þess að samþykkja frumvarpið.

Demókratar, sem ráða öldungadeildinni, vilja afgreiða málið hratt á meðan flokkurinn er enn með meirihluta í fulltrúadeild þingsins. Repúblikanar eru við það að tryggja sér nauman meirihluta þar eftir þingkosningar sem fóru fram í síðustu viku. Nýtt þing kemur saman á nýju ári.

„Ástin er ástin og Bandaríkjamenn ættu að eiga rétt á að giftast þeirri manneskju sem þeir elska,“ sagði Joe Biden Bandaríkjaforseti eftir að niðurstaða atkvæðagreiðslunnar lá fyrir.

Aukinn stuðningur eftir viðsnúning Hæstaréttar um þungunarrof

Samkynja pör hafa átt rétt á að ganga í hjónaband frá því að tímamótadómur féll í Hæstarétti Bandaríkjanna árið 2015. Nú eru íhaldsmenn í afgerandi meirihluta í Hæstarétti en þeir hafa þegar afnumið rétt kvenna til þungunarrofs og þar með snúið við meira en hálfrar aldar dómafordæmi.

Stuðningur við að lögfesta rétt samkynja para til hjónabands hefur aukist verulega eftir viðsnúning Hæstaréttar í þungunarrofsmálinu, ekki síst vegna þess að einn íhaldssömu dómaranna skrifaði í áliti sínu að til greina kæmi að endurskoða réttindi samkynhneigðra næst.

Chuck Schumer, leiðtogi demókrata í öldungadeildinni, sagði frumvarpið gera Bandaríkin réttlátari fyrir alla. Dóttir hans er samkynhneigð.AP/J. Scott Applewhite

Frumvarpið sem nú stefnir í að verði samþykkt afnæmi lög um hjónabönd sem voru samþykkt í forsetatíð Bills Clinton. Það gerði ríkjum að viðurkenna öll hjónabönd sem voru lögleg þegar þau voru framkvæmd. Það kveður einnig á um að ríki verði að viðurkenna hjónabönd fólks af ólíkum kynþætti. Vangaveltur hafa verið uppi um hvort að Hæstiréttur gæti einnig snúið við dómafordæmi um slík hjónabönd.

Romney, öldungadeildarþingmaður Utah, sagði í yfirlýsingu í kvöld þar sem hann boðaði að hann greiddi atkvæði með því að halda umræðunni áfram að hann hefði gert það eftir að breytingatillaga var gerð um vissa trúfrelsisfyrirvara. Þótt hann sjálfur tryði á „hefðbundin hjónabönd“ væru réttindi hinsegin fólks landslög eftir hæstaréttardóminn árið 2015.

„Þetta frumvarp skapar vissu fyrir marga LGBTQ-Bandaríkjamenn og sendir þau skilaboð að Bandaríkjaþing, og ég, kunni að meta og elski alla landa okkar jafnt,“ sagði Romney.

Mormónakirkjan, sem er áhrifamikil í Utah, gerði líf Romney léttara þegar hún lýsti nokkuð óvænt yfir stuðningi við frumvarpið í vikunni.


Tengdar fréttir

Óttast að hjóna­bönd sam­kyn­hneigðra og fleiri réttindi séu í hættu næst

Frjáslyndir dómarar við Hæstarétt Bandaríkjanna vöruðu við því að hjónabönd samkynhneigðra og aðgangur að getnaðarvörnum gæti verið á meðal annarra réttinda í hættu eftir að rétturinn felldi niður rétt kvenna til þungunarrofs í gær. Einn íhaldssömu dómaranna sagðist vilja endurskoða þau réttindi í séráliti sínu.

Í­halds­öfl við völd í Hæsta­rétti Banda­ríkjanna

Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur á síðustu vikum tekið afdrifaríkar ákvarðanir sem snerta bæði umhverfisstefnu landsins og mannréttindi. Lektor við lagadeild Háskóla Íslands segist eiga von á því að rétturinn haldi áfram á braut íhaldssemi og segir gjánna milli íhaldssamra og frjálslyndra dómara réttarins aldrei hafa verið meiri.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×