Lífið

Rómantík á RÚV

Elísabet Hanna skrifar
Guðni og Sunna eru nýtt par.
Guðni og Sunna eru nýtt par. Skjáskot/Instagram

Fréttamaðurinn Sunna Valgerðardóttir og dagskrárgerðarmaðurinn Guðni Tómasson eru nýtt par. Þau starfa bæði hjá Ríkisútvarpinu og hefur ástin verið að þróast á milli þeirra síðustu mánuði, líkt og Smartland greindi fyrst frá.

Á RÚV heldur Sunna meðal annars utan um þættina Þetta helst og Heimskviður á Rás 1. Sunna starfaði um tíma hjá fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. Þar sinnti hún fréttamennsku og hafði umsjón með fréttaskýringaþættinum Kompás. 

Sunna sneri aftur á RÚV fyrr á árinu, þar sem hún var áður við störf. Guðni stýrir menningarþáttum á Rás 1 og var lengi vel með þáttinn Víðsjá


Tengdar fréttir

Íris Tanja og Elín Ey trú­lofaðar

Tónlistarkonan Elín Eyþórsdóttir og dans- og leikkonan Íris Tanja Flygering hafa trúlofað sig. Íris fór nýlega á skeljarnar og sagði Elín já.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×