Innlent

Myndband: XPeng X2 flugbíllinn tekur á loft

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
XPeng X2.
XPeng X2.

Tveggja sæta raf-flugbíllinn XPeng X2 er hannaður til að fljúga lágt yfir borgum og koma farþegum stuttar vegalengdir. Flugið átti sér stað í Dubai.

XPeng X2 á flugi.

Viðburðurinn markar fyrsta opinbera flug XPeng X2 eftir að áhættumat á því sem gæti hugsanlega farið úrskeiðis hafði leitt í ljós að réttast væri að veita leyfi fyrir fluginu. Yfir 150 manns sáu flugið sem fór fram á opnunardegi GITEX (Alheims tæknisýningunni í World Trade Center í Dubai).

XPeng X2 hlaut lof áhorfenda fyrir stöðugleika á flugferlin. Ferlið var ekki flókið en eins og sést á myndbandinu tók bíllinn lóðrétt á loft og sveif í um þriggja metra hæð. Fluginu svipar mikið til drónaflugs.

Flugbíllinn er þróaður af dótturfélagi kínverska bílaframleiðandans XPeng, sem heitir XPeng Aeroht, sem lýsir bílnum sem stærsta fljúgandi bílnum í Asíu. Nánari lýsing á tæknilegum smáatriðum flugbílsins verður kynnt seinna í október.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×