Donetsk er eitt fjögurra sem Rússar ætla að innlima. Takist Úkraínumönnum að stökkva Rússum á flótta á svæðinu gæti það opnað leið fyrir þá lengra inn í Donetsk og inn í Luhansk-hérað, sem Rússar ætla einnig að innlima.
Óstaðfestar fregnir af svæðinu herma að rússneskir hermenn undirbúi nú að hörfa frá Lyman til austurs í gegnum umsátur Úkraínumanna.
Sjá einnig: Putin með sjónarspil í tilefni ólöglegrar innlimunar
Bærinn er ekki talin umkringdur að fullu og eru Rússar sagðir eiga eina undakomuleið, sem Úkraínumenn hafi þó undirbúið árásir á. Þó er vert að benda á að ástandið við Lyman er að mörgu leyti óljóst og er til að mynda ekki vitað hve margir rússneskir hermenn eru í og við borgina.
Á kortinu hér að neðan má sjá grófa mynd af því hvernig staðan við Lyman var í gær. Hún er sögð hafa versnað töluvert fyrir Rússa síðan þá. Gagn-gagnárásir Rússa hafa ekki komið í veg fyrir umsátrið.
Eastern #Ukraine Update:
— ISW (@TheStudyofWar) September 30, 2022
Ukrainian troops have likely nearly completed the encirclement of the #Russian grouping in #Lyman and cut critical ground lines of communication (GLOCS) that support Russian troops in the Drobysheve-Lyman area. /1https://t.co/RzCU0FE42G pic.twitter.com/ltaaysjQxg
Reyni Rússar að hörfa má gera ráð fyrir því að Úkraínumenn muni reyna að gera árásir á þá og stökkva þeim á óskipulagðan flótta, með því markmiði að valda mannfalli og óreiðu meðal herafla Rússlands á svæðinu.
Myndefni af grönduðum rússneskum skrið- og bryndrekum og líkum rússneskra hermanna við Lyman hafa verið í dreifingu á samfélagsmiðlum í dag, eftir að Rússar voru sagðir hafa hörfað frá bæjum og þorpum nærri Lyman.
Rússneskur herbloggari segir úkraínskar hersveitir byrjaðar að nálgast undamkomuleiðina frá Lyman. Rússneskir bloggarar sem fjalla um málefni hersins mynda tiltölulega stórt og virkt samfélag í Rússlandi og hafa margir hverjir góða heimildarmenn í hernum. Þeir hafa haft verulegar áhyggjur af stöðunni í Lyman um nokkuð skeið.
Russian tank hit by Ukrainian soldiers from FGM-148 Javelin pic.twitter.com/3znYDviinI
— Paul Jawin (@PaulJawin) September 30, 2022
Eiga erfitt á víglínunum
Úkraínumenn hafa unnið að því að umkringja Lyman í nokkra daga en sóknin gegn borginni hófst eftir að Rússar voru reknir frá Kharkív-héraði fyrr í þessum mánuði.
AP fréttaveitan hefur eftir sérfræðingi að skyndi-innlimun Rússa á fjórum héruðum Úkraínu séu viðbrögð við því að Rússar eigi í erfiðleikum á víglínunum í Úkraínu. Hersveitir Rússa hafa ekki gert vel heppnaðar sóknir gegn Úkraínumönnum um mánaðaskeið og eru á hælunum víðast hvar.
#Ukraine: The Ukrainian 3rd Tank Brigade targeted three Russian tanks, with at least one destroyed. pic.twitter.com/er77L6btGd
— Ukraine Weapons Tracker (@UAWeapons) September 30, 2022
#Ukraine: A Russian T-72B3 tank was taken out by an ATGM fired by the Ukrainian 95th Brigade in the vicinity of Olhivka, #Kharkiv Oblast. pic.twitter.com/tHmbWtkXsP
— Ukraine Weapons Tracker (@UAWeapons) September 30, 2022